Innlent

Nágrannar ekki sáttir

Steypuklumpar standa fyrir framan sendiráð Bandaríkjanna og eiga að vera þar til varnar hryðjuverkum. Nágrannar sendiráðsins eru ósáttir og óttast að bílsprengjur leggi híbýli þeirra í rúst í staðinn. Í gær var fyrstu klumpunum komið fyrir utan við sendiráðið, þar sem áður voru bílastæði sendiráðsins. Gert er ráð fyrir því að blómakerjum verði komið fyrir ofan í klumpunum, en þrátt fyrir það eru þeir ekkert augnayndi. Íbúarnir eru margir mjög ósáttir við þessa framkvæmd og kemur meðal annars til greina, að borgaryfirvöld fjalli um málið. Borgaryfirvöld eru höfð með í ráðum, að sögn Phils Kosnetts, staðgengils sendiherra Bandaríkjanna. Hann segir að verið sé að koma á fót tálmum til þess að gera hugsanlegum hryðjuverkamönnum erfiðara um vik að sprengja bílsprengju utan við sendiráðið. Markmiðið sé að gera götuna og alla sem í henni búa öruggari en áður. Kosnett segist þó skilja gremju þeirra sem eru smeykir um að búnaðurinn gæti orðið til þess að sprengja myndi frekar dreifast yfir götuna og á íbúðarhús en ella. Samkvæmt reglum bandaríska utanríkisráðuneytisins eiga sendiráð að vera í þrjátíu metra fjarlægð frá næsta mannvirki. Kosnett segir að vel komi til greina að skipta um húsnæði, en til þess þurfi samþykki borgaryfirvalda í Reykjavík, yfirvalda í Washington og nágranna sendiráðsins. Það sé einnig mjög dýrt. Hann vill þó alls ekki útiloka að af flutningi verði fyrr eða síðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×