Lægri gjöld í Noregi 14. september 2004 00:01
Norskir bankar taka ekkert lántökugjald vegna húsnæðislána eins og íslenskir bankar gera, og ekki heldur uppgreiðslugjald af lánunum en það gera íslensku bankanir. Norksu húsnæðislánin eru heldur ekki verðtryggð, þannig að norskir íbúðakaupendur þurfa ekki að greiða einskonar vaxtavexti eins og hér á landi auk þess sem vextir af norskum íbúðalánum eru talsvert lægri en hér á landi. Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri sambands banka og sparisjóða sagði í viðtali í Kastljosi nýverið, þegar hann gagnrýndi hið opinbera fyrir eins og hálfs prósents þinglýsingargjald að eins prósents lántökugjald bankanna væri hinsvegar eðlilegur umsýslukostnaður. Greinilegt er að norskir bankamenn eru ekki á sama máli því ef norskir íbúðakaupendur taka til dæmis tíu milljóna króna lán, þá fá þeir tíu milljónir óskertar. Hinsvegar er greitt þinglýsingargjald í Noregi eins og hér. Norsku bankarnir taka heldur ekki tveggja prósenta uppgreiðslugjald, ef lán er greitt upp á miðjum lánstímanum, eins og íslensku bankarnir ætla að gera, þrátt fyrir hörð mótmæli ASÍ, sem telur það jafnvel ólöglegt. Vaxtastríðið í húsnæðislánageiranum í Noregi, heldur áfram, en vextir af húsnæðislánum í Noregi eru jafnvel komnir rétt niður fyrir þrjú prósent í vissum tilvikum. Vextirnir hækka hinsvegar eftir því sem lánshlutfallið hækkar og hjá DNB bankanum norska fara þeir upp í rúm 4 prósent ef bankinn lánar fyrir öllu kaupverðinu. Það er samt lægra en KB banki býður hér, með lántökugjaldi , vaxtavöxtum og uppgreiðslugjaldi. Frekari lækkana er enn að vænta í Noregi því norskir efnahagssérfærðingar spáðu því í morgun að vextir af íbúðalánum kunni að fara alveg niður í eitt og hálft prósent í vissum tilvikum, á næstu vikum og mánuðum. Eftir stendur að þrátt fyrir vaxtalækkun íslenskra banka, sparisjóða , lífeyrissjóða og íbúðalánasjóðs, eru húsnæðislán á Íslandi mun dýrari en í Noregi og við það bætist svo óvissuþátturinn vegna verðtryggingar.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Fleiri fréttir Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sjá meira