Þrjú ár frá árásinni á Bandaríkin 11. september 2004 00:01
Hryðjuverkaárásanna í New York og Washington þann 11. september 2001 er minnst í dag. Á þeim þremur árum sem liðin eru hefur hryðjuverkum fjölgað í heiminum, al-Kaída samtökin lifa góðu lífi og Osama bin Laden gengur enn laus. Minningarathafnir eru haldnar víða um heim í dag en þó aðallega í Bandaríkjunum. Ættingjar þeirra 2749 sem létu lífið í árásinni á tvíburaturnana í New York ætla að safnast saman við núllpunktinn svokallaða þar sem turnarnir stóðu og lesa upp nöfn fórnarlambanna. Nú, þremur árum síðar, á enn eftir að bera kennsl á um fjörutíu prósent þeirra sem létu lífið í turnunum. Svipuð athöfn verður í Pentagon í Washington þar sem 184 létust og farþeganna fjörutíu sem fórust með fjórðu flugvélinni í Pennsylvaníu-ríki verður einnig minnst. Stríðið gegn hryðjuverkum sem hófst í kjölfar árásanna stendur enn sem hæst en deilt er um árangurinn. George Bush Bandaríkjaforseti sagði á flokksþingi repúblikana að búið væri að handsama eða drepa um þrjá fjórðu af helstu leiðtogum al-Kaída. Margir vilja þó meina að það sé broguð aðferðafræði að telja hausa á þennan hátt. Taka verði tillit til þess hvort samtökin eða hugmyndafræðin sem þau standa fyrir séu að fá nýja fylgismenn til liðs við sig, jafnvel örar en Bandaríkjastjórn tekst að leita uppi þá gömlu. Al-Kaída samtökin hafa einnig breyst mikið. Forsvarsmenn þeirra eru nú að mestu hættir að koma sjálfir beint að skipulagningu hryðjuverka. Í staðinn hafa samtökin tekið nokkurs konar hugmyndafræðilega forystu meðal þeirra hryðjuverkasamtaka sem berjast í nafni íslam og hópar um allan heim halda hryðjuverkum áfram í nafni málstaðarins. Á móti má þó segja að Osama bin Laden hafi heldur ekki tekist ætlunarverk sitt; að stefna öllu upp í loft í heiminum. Kannski er niðurstaðan því sú að ennþá stendur enginn uppi sem sigurvegari í þessu stríði.
Erlent Fréttir Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fleiri fréttir Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Sjá meira