Flokksþing hefst í dag 30. ágúst 2004 00:01
Forseti Bandaríkjanna á hvorki að vera demókrati né repúblíkani, íhaldssamur né frjálslyndur. Hann á að vera leiðtogi. Þetta eru skilaboðin sem senda á frá flokksþingi repúblíkana sem hefst í New York í dag. Ráðstefnan hefst klukkan sex að staðartíma, svo að hægt sé að senda sem mest af henni út á besta sjónvarpsstíma - þó að það séu aðeins fréttastöðvar sem fylgjast með. Hún hefst í dag með því að hryðjuverkaárásanna ellefta september 2001 og fórnarlamba þeirra verður minnst. En ráðstefnan fer einmitt fram í Madison Square Garden, sem er aðeins um sjö kílómetra fjarlægð frá staðnum þar sem tvíburaturnarnir stóðu. Meðal þeirra sem stíga fyrstir á stokk eru John McCain, þingmaður, og Rudy Guiliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York. Þeim er ætlað að móta þá ímynd sem Repúblíkanar vilja selja: að flokkurinn sé opinn og ekki nærri eins íhaldssamur og halda mætti. Reyndar eru hvorki McCain né Guiliani í takt við meirihluta flokksins eða Bush forseta, sem eru töluvert til hægri við þá báða. En þeir eru taldir líklegri til að höfða til óákveðinna kjósenda en harðlínuíhaldsmenn, enda flestir hinna óákveðnu kjósenda taldir tilheyra hinni svokölluðu loðnu miðju. Rétt eins og John Kerry og Demókratar ræddu fjögurra mánaða herþjónustu Kerrys í Víetnam í þaula, verður megináherslan hjá Repúblíkönum styrk stjórn Bush forseta á tímum hryðjuverkaárása og almenns ótta. Fréttaskýrendur bíða þó spenntir eftir því hvort að Bush hafi eitthvað nýtt fram að færa, eða hvort að hann lofi einungis fjórum árum af því sama - nokkuð sem ekki er endilega talið nægja til að sannfæra óákveðna kjósendur sem skipta öllu máli í þessum kosningum. Repúblíkanar eru þó bjartsýnir nú við upphaf ráðstefnunnar, enda sýna kannanir að hagur Bush hefur heldur vænkast á meðan Kerry er í vörn.
Erlent Fréttir Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira