Spáð vonskuveðri á gamlárskvöld 28. desember 2004 00:01
Horfur eru á vonskuveðri víða um land á gamlárskvöld og jafnvel útlit fyrir að fresta verði áramótabrennum á höfuðborgarsvæðinu. Þar sem nokkrir dagar eru enn til áramóta geta spár breyst en spárnar á þessari stundu eru sammála um það hvernig veðrið verður á Íslandi um áramótin. Sigurður Þ. Ragnarsson veðurfréttamaður hefur rýnt í spárnar og neitar því ekki að þær gætu verið betri, sérstaklega með hliðsjón af vindhraða. Á gamlársdag er búist við að mjög djúp lægð, um 955 millibör, muni mjaka sér norður eftir Vesturlandi og vera við Vestfirði á miðnætti. Lægðinni fylgja skil og úrkoma. Að sögn Sigurðar mun vindhraði um miðjan dag á gamlársdag vera á bilinu 15-23 metrar á sekúndu, hvassast á sunnan- og suðvestanverðu landinu og nær hámarki um miðjan dag. Búist er við vægu frosti. Lægðinni fylgja talsverð él um kvöldið. Það verður helst á norðausturlandi sem flugeldar sjást almennilega en þar verður mjög hvasst. Veðrið skánar hins vegar þegar líður á kvöldið og verður gott á nýársdag. Áramótabrennur verða venju samkvæmt víða um land. Í Reykjavík verða tíu brennur, við Ægissíðu, í Skerjafirði, við Suðurhlíðar, Leirubakka, Suðurfell, á Fylkissvæðinu í Árbæ, við ÚIfarsfell, á Geirsnefi, í Gufunesi og við Laugarásveg. Svo gæti hins vegar farið að ekki verði hægt að kveikja í þeim á þeim tíma sem til stóð því þegar vindhraði er kominnn upp í 15-18 metra fer að orka tvímælis að eiga við eld, að sögn Sigurðar, sem gæti orðið raunin á sumum stöðum.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira