Síminn leggur sitt af mörkum 29. desember 2004 00:01
Vegna hinna hræðilegu náttúrhamfara í Asíu um jólin sem kostað hafa tugþúsundir mannslífa hafa Síminn og starfsmenn fyrirtækisins ákveðið að leggja sitt af mörkum til að aðstoða þolendur í þessum fjarlæga heimshluta. Starfsfólk Símans er að hrinda af stað fjársöfnun innan fyrirtækisins. Allir starfsmenn Símans eru hvattir til að gefa 1.000 krónur hver í þessum tilgangi. Síminn mun síðan tvöfalda upphæðina sem safnast og mun féð renna óskert til Rauða Kross Íslands (RKÍ), sem mun nýta það við hjálparstörf. Forráðamenn Símans hafa auk þess ákveðið að afhenda RKÍ fjárupphæð sem nemur 15% af heildarupphæðinni sem safnast mun í símasöfnun Rauða krossins til neyðaraðstoðar á umræddum svæðum. Upphæðin mun einnig renna til hjálparstarfsins á hamfarasvæðunum. „Það er samfélagsleg skylda okkar hjá Símanum að leggja okkar af mörkum til þess að lina þjáningar þessa fólks sem er að upplifa mestu náttúrhamfarir okkar tíma“, segir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans. Þá hefur Síminn ákveðið að koma til móts við þá einstaklinga hérlendis sem þurfa að ná sambandi við ástvini sína í löndunum sem verst urðu úti í hamförunum með því að taka ekkert fyrir símtöl þangað fram til miðnættis sunnudaginn 2. janúar n.k. Með þessum hætti geta viðskiptavinir Símans hringt gjaldfrjálst úr talsíma til Thaílands, Indlands, Indónesíu og Sri Lanka. Ef viðkomandi einstaklingar hringja úr farsíma þá kostar mínútan aðeins 10 krónur. Þá þurfa Íslendingar sem staddir eru í þessum fjórum löndum með GSM-síma frá Símanum ekki að greiða fyrir móttöku símtala frá Íslandi. Auk þess innheimtir Síminn ekkert fyrir að móttaka símtöl í þessum löndum, utan þess álags sem erlendu farsímafyrirtækin innheimta sérstaklega. Þetta fyrirkomulag, sem er ætlað til þess að landsmenn geti talað við ástvini sína á hættusvæðunum, tekur gildi síðdegis í dag, miðvikudaginn 29. desember. Þar við bætist að Síminn ákvað að lána sendifulltrúum Rauða krossins tvo gervihnattasíma til notkunar á hamfarasvæðunum.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Sjá meira