4400 börn njóta stuðnings ABC 23. desember 2004 00:01
Yfir fjögur þúsund börn njóta stuðnings í gegnum ABC-hjálparstarf, þar af bættust eitt hundrað og tuttugu við nú í desember. Staðan er þannig að biðlisti er eftir að fá að styðja börn í Suður-Úganda. ABC-hjálparstarf er íslenskt hjálparstarf sem byggir á kristnum gildum og var stofnað árið 1988. Samtökin styðja börn í Úganda, á Filippseyjum og á Indlandi. Fólk getur stutt börnin með mánaðarlegum framlögum og orðið eins konar stuðningsforeldrar og eru myndir og upplýsingar um börnin á skrifstofu ABC. Guðrún Margrét Pálsdóttir, frumkvöðull ABC, segir að biðlisti sé eftir að fá að styðja börn í Suður-Úganda en von sé á fleiri börnum í stuðning í janúar. Í dag vantar stuðning í Norður-Úganda, á Filippseyjum og Indlandi. Aðspurð hvað skýri skort á börnum til að styðja í Suður-Úganda segir hún svo marga stuðningsaðila hafa bæst við að undanförnu, m.a. vegna þess að ABC-skólinn þar er mjög góður og vel sé búið að börnum í landinu. Núna bíða um 20 fjölskyldur eftir að fá að styðja barn, enda segir Guðrún að Íslendingar séu almennt tilbúnir í stuðning sem þennan. Yfir 4400 börn njóta stuðnings í dag, þar af bættust eitt hundrað og tuttugu við nú í desember og þeim fjölgar hratt. Allt stuðningsféð fer beint til barnanna og uppbyggingarstarfs þeirra vegna en rekstur skrifstofunnar og annars er fjármagnaður með öðru fé. Guðrún segir að flestir vilji styðja börnin til langframa og oft myndist góð tengsl á milli þeirra og stuðningsforeldranna. Fólk setji til dæmis mynd af barninu á ísskápinn heima hjá sér og telji það einn af fjölskyldunni en sumir kjósi að hafa þetta ópersónulegt.
Fréttir Innlent Mest lesið Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Innlent Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Innlent Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta Innlent Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Innlent Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Innlent Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Erlent Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Innlent Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Innlent Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Innlent Fleiri fréttir Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Vetur í íslenskri kvikmyndagerð Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Hjartaljósin ekki sloppin „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Stór mál á dagskrá síðasta þingfundar fyrir þingfrestun Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Hvalavinurinn í tunnunni og Kaleo undirbýr Þingvallakonsert Inga ræddi við fulltrúa Tiktok um að hækka aldursmörk Halda í opinbera heimsókn til Færeyja Dómur burðardýrs mildaður Starmer ætlar ekki að láta í minni pokann fyrir Burnham strax Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Sjá meira