Bandaríkjamenn fastir fyrir 22. desember 2004 00:01
Dvínandi líkur eru á því að japönsk stjórnvöld sleppi Bobby Fischer úr landi í bráð eftir að mál hans lenti á borði embættismanna í dómsmálaráðuneytinu í Tókýó. Bandaríkjamenn skoða málið en fara sér hægt. Í upphafi hafði útlendingastofnun í grennd við Narita-flugvöll í Japan forráð yfir Fischer og málum hans í Japan en nú hefur dómsmálaráðuneytið í Tókýó tekið við. Ekki er ljóst hvers vegna þessi háttur ef hafður á, þó að viðmælendur fréttastofunnar hafi getið sér til um að það væri vegna pólítískrar spennu í kringum málið. Kunnugir telja að þetta þýði vandlega og tímafreka yfirvegun embættismanna. Íslenska sendiráðinu í Tókýó hafði ekki borist neinar nýjar fréttir í morgun nema hvað lögfræðingur Fischers ætlar nú að leita eftir fundi með embættismönnum dómsmálaráðuneytisins. Nefnd um frelsun Fischers skoraði í morgun á Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, að hlutast til um að Fischer fengi frelsi og að honum yrði leyft að halda til Íslands. Fischer var í sambandi við Sæmund Pálsson, vin sinn, í morgun og var þá nokkuð bjartsýnn um framgang mála. Þá hafði lögfræðingur hans ekki enn fengið svar frá dómsmálaráðuneytinu í Tókýó og á morgun er frídagur í Japan sem þýðir að ekkert gerist þá. Bandarísk stjórnvöld hafa íhugað að beita Japana þrýstingi vegna Bobby Fischers en enn sem komið er hefur ekki verið til þess gripið, eftir því sem fréttastofan kemst næst. Nokkur hiti er í Bandaríkjamönnum vegna tilboðs Íslendinga, enda hafa þeir sótt mál Fischers af nokkurri hörku og vilja ekki sleppa honum við refsingu. Í Washington er málið nú til ítarlegrar skoðunar og segja viðmælendur fréttastofunnar litlar líkur á stefnubreytingu.
Fréttir Innlent Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira