Síminn ósáttur 21. desember 2004 00:01
Erlend símafyrirtæki greiða lægra heildsöluverð fyrir símtöl viðskiptavina í net Og Vodafone en Síminn, segir Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans. Hluta símtala úr númerum Símans til Og Vodafone sé því beint í gegn um norkst símafyrirtæki, sem bjóði lægra heildsöluverð að neti Og Vodafone. Síminn gagnrýnir Póst- og fjarskiptastofnun fyrir að íhlutast ekki um heildsöluverð Og Vodafone. Jafnræðis sé ékki gætt milli símafyrirtækja. Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Póst- og fjarskiptastofnunar, segir að eftir að stofnunin hafi úrskurðað Og Vodafone markaðsráðandi á fjarskiptamarkaði hafi kostnaðargreining á heildsöluverði fyrirtækisins farið fram. Tölur Og Vodafone hafi ekki gefið ástæðu til að gera athugasemdir við gjaldskrána. Eva segir Og Vodafone ívilna eigin deildum og erlendum fjarskiptafyrirtækjum: "Á þetta hefur Síminn ítrekað bent síðastliðið eitt og hálft ár án þess að Póst- og fjarskiptastofnun taki ákvörðun í málinu." Pétur Pétursson, forstöðumaður upplýsinga- og kynningarmála hjá Og Vodafone, segir heildsöluverð til erlendra fjarskiptafyrirtækja ekki óeðlilega lægra en verð til Símans. Samningar við erlend fjarskiptafyrirtæki séu gerðir til langs tíma og í erlendri mynt: "Gengisþróun olli því til skamms tíma að verðið reyndist óvenju lágt fyrir sum þessara erlendu fjarskiptafyrirtækja. Landssíminn hefur síðan ákveðið að kaupa þennan aðgang að neti Og Vodafone af erlendu fjarskiptafyrirtækjunum og spara við það nokkra aura á mínútuna," segir Pétur: "Þetta er alþekkt hjá sjóræningjasímafyrirtækjum í útlöndum sem leita alltaf ódýrustu leiða til að flytja umferð sína á kostnað gæða þjónustunnar sem þau veita viðskiptavinum sínum." Póst- og fjarskiptastofnun vinnur að nýrri greiningu íslensks fjarskiptamarkaðar. Hrafnkell segir að í framhaldinu verði hugsanlega aðrar aðferðir nýttar við kostnaðargreiningu sem gæti leitt til íhlutunar um heildsöluverð. Það skýrist í vor. Eva segir of lengi beðið.
Fréttir Innlent Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sjá meira