Fuglarnir verði notaðir markvisst 21. desember 2004 00:01
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, er bjartsýnn á framtíð skógræktar hér á landi, þrátt fyrir svarta skýrslu Ríkisendurskoðunar um greinina. Guðni vill markvisst nota snjótittlinga til landgræðslu, eins og gert er við Gunnarsholt. Þeir vinna kauplaust og eru glaðir við sína iðju, segir ráðherra. Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um skógrækt hér á landi, er talið tímabært að huga að nýjum skógræktarlögum og skapa heildstæða stefnu um skógvernd og skógrækt á vegum hins opinbera, en núgildandi lög eru frá 1955. Bent er á að áætlanir stjórnvalda, um að klæða 5 prósent láglendis skógi á 40 árum, standist ekki, nema með auknum fjárframlögum. Landbúnaðrráðherra segir skýrsluna gagnlega. Hann segir sumt rétt og margt ágætt í skýrslunni, hins vegar standist það ekki að engin stefna sé í málinu. Enda sé til sérstök löggjöf um hvert einasta verkefni. Guðni segir að innan landbúnaðarráðuneytisins sé nú unnið að því að samræma landshlutabundnu skógræktarverkefnin í eina heildstæða löggjöf, sem kunni að taka gildi strax næsta vor. Hann telur mikil tækifæri fólgin í skógækt hér á landi í framtíðinni. Hann segir þetta vonandi verða dýrmæta auðlind, bæði sem atvinnugrein og einnig valdi hún því að byggðirnar í landinu styrkist. Þúsundir snjótittlinga eru nú notaðar til landgræðslu við Gunnarsholt, með því að fóðra þá á tólg, sem blandað hefur verið saman við ber. Þannig bera smáfuglarnir fræin um landið eins og litlar landgræðsluflugvélar. Guðni segir það yndislegt að nota afl fuglanna, sem vinni kauplaust og séu glaðir við sína iðju. Hann segir það vel koma til greina að fara markvisst út í svona aðgerðir.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira