Sæmundur fer líklega á morgun 20. desember 2004 00:01
Bandarísk stjórnvöld hafa hvatt íslensk stjórnvöld til þess að draga til baka boðið til bandaríska skákmannsins Bobbys Fischers um dvalarleyfi á Íslandi. Sæmundur Pálsson leggur hugsanlega af stað frá Íslandi á morgun til að sækja Fischer. Í Bandaríkjunum vofir yfir Bobby Fischer fangelsisvist þar sem hann rauf að mati Bandaríkjamanna viðskiptabann við Júgóslavíu þegar hann tefldi þar árið 1992. Eftir að íslensk stjórnvöld ákváðu að bjóða honum dvalarleyfi áréttuðu yfirvöld í Washington á blaðamannafundi á föstudag að Bobby Fischer væri eftirlýstur. Er ekki að sjá að framsalskrafa sé útilokuð, komi hann hingað til lands, og nú hefur komið í ljós að utanríkisráðuneytinu íslenska barst orðsending á föstudaginn síðastliðinn þar sem bandarísk stjórnvöld hvöttu þau íslensku til að draga boð til Bobbys Fischers um dvarlarleyfi hér á landi til baka. Þetta staðfestir Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Orðsendingin barst í gegnum sendiráð Bandaríkjanna hér á landi. Ekki fást upplýsingar um viðbrögð við þessari orðsendingu. Þennan sama dag, föstudag, sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra hins vegar að hann teldi ólíklegt að framsals yrði krafist og þó svo hún kæmi efaðist hann um að Íslendingum yrði skylt að verða við henni. Sjálfur hefur Fischer nú ákveðið að falla frá málsókn á hendur japönskum stjórnvöldum, en það ætlar hann þó ekki að gera fyrr en tryggt er að þau heimili honum að fara til Íslands. Þetta þarf að komast á hreint áður en Sæmundur Pálsson heldur utan til að fylgja Fischer til landsins. Jafnvel var búist við því að þessi mál kæmust á hreint í dag og var Sæmundur tilbúinn að fara, ásamt fleirum, í einkaþotu til Japans í hádeginu í dag. Síðar kom í ljós að ekkert myndi gerast strax svo ferðin verður farin í fyrsta lagi á morgun, annað hvort með einkavél eða áætlunarflugi.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fleiri fréttir Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Sjá meira