Spara mætti 240 milljónir á ári 14. desember 2004 00:01
Stjórnendur Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar telja að hægt væri að flytja innanlandsflug til Keflavíkur á innan við einu ári og spara verulegt fé. Höskuldur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Leifsstöðvar, skýrði frá því á fundi nýverið að allt að tvö hundruð og fjörutíu milljónir myndu sparast á ári við flutninginn. Á fundi stjórnenda Leifsstöðvar og Aflvaka, þróunarfélags Reykjavíkurborgar, fyrir skömmu kom fram að kostnaður við rekstur Reykjavíkurflugvallar nemi á ári hverju um 300 milljónum fyrir utan yfirstjórn og stofnkostnað. Rekstur innanlandsflugs á Keflavíkurflugvelli myndi sennilega kosta um 60 til 80 milljónir á ári fyrir utan stofnkostnað, að mati stjórnenda Leifsstöðvar. Davíð Oddsson utanríkisráðherra ljáði máls á því í viðræðum við Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, fyrir skemmstu að Íslendingar tækju á sig stærri hluta af rekstrarkostnaði Keflavíkurflugvallar og hafa spurningar vaknað í kjölfarið um hvort nú sé lag að flytja starfsemi Reykjavíkurflugvallar til Keflavíkur í sparnaðarskyni. Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Aflvaka, áréttar að ekki sé búið að staðfesta þessar tölur um sparnað sem slegið hafi verið fram á fundinum, þó svo að standa megi við fullyrðingar um sparnað vegna samlegðaráhrifa við annan rekstur. "Það sem liggur í þessu er að hægt er að ná fram verulegum sparnaði og greinilega hægt að taka við innanlandsfluginu með tiltölulega stuttum fyrirvara," sagði hann og bætti við að með flutningi innanlandsflugsins næðist greinilega aukið rekstrar- og vinnuhagræði á Keflavíkurflugvelli. Aflvaki hefur í kjölfar ráðstefnu um "stórborgina" sem haldin var síðasta vor fundað með forsvarsmönnum nágrannasveitarfélaga höfuðborgarinnar þar sem velt hefur verið upp hugmyndum um aukið samstarf. Fundurinn með Leifsstöðvarmönnum tengdist viðræðum við Reykjanessbæ.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira