Mismunun trúfélaga leyfileg 14. desember 2004 00:01
Hrópleg mismunun og ranglæti er milli trúfélaga, segir Hjörtur Magni Jóhannsson, prestur í Fríkirkjunni í Reykjavík. Hjörtur biður um jafnræði milli þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga. Endurskoða þurfi lög sem gildi um kirkjuna. Hvorki sé verið að biðja um forréttindi til handa Fríkirkjunni né að hún verði ríkiskirkja. "Ég tel að það sé ókristilegt að menn loki augunum fyrir ranglætinu. Kærleikurinn og réttlætiskenndin eru grunnþræðir í kristinni boðun og kristinni trú. Ef umgjörð kirkjunnar er ekki trúverðug og ekki kristileg er ég ansi hræddur um að allt innra starf missi svolítið vægi," segir Hjörtur. Halldór Reynisson, verkefnisstjóri fræðslusviðs þjóðkirkjunnar, segir málflutning Hjartar ómálefnalegan, nú sem fyrr. "Það virðist vera meginósk Fríkirkjuprestsins að Fríkrikjan geti sótt í svokallaðan jöfnunarsjóð þjóðkirkjunnar. Um þann sjóð gilda hins vegar lög sem koma í veg fyrir að það sé hægt. Meðal annars vegna þess að meðlimir í Fríkirkunni greiða ekki í hann, sem meðlimir þjóðkirkjunnar gera aftur á móti." Halldór segir þjóðkirkjuna hafa viljað að söfnuður Fríkirkjunnar í Reykjavík sæti við sama borð og þjóðkirkjusöfnuðir. "Má þar benda á að biskup Íslands hefur varpað þeirri hugmynd fram að lögum um þennan sjóð sé breytt en hlaut takmarkaðar undirtektir hjá löggjafanum." Nefna megi að á kirkjuþingi fyrir þremur árum hafi komið fram tillaga um að fríkirkjur hefðu sambærilegan aðgang að jöfnunasjóði og söfnuðir þjóðkirkjunnar. "Þessari hugmynd hefur séra Hjörtur Magni alfarið hafnað." Halldór segir þjóðkirkjuna reiðubúna að stuðla að því að lyktir finnist í málinu þannig að sátt náist: "Það snýr þó fyrst og fremst að ríkisvaldinu en ekki þjóðkirkjunni." Í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu fengust þau svör að mismunun trúfélaga væri ekki óleyfileg samkvæmt stjórnarskránni. Að öðru leyti fengust engin svör
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira