Náttúran aðal aðdráttaraflið 14. desember 2004 00:01
Hann er vel menntaður, vel stæður og hefur fyrst og fremst áhuga á náttúru Íslands. Þannig hljómar lýsingin á hinum dæmigerða, erlenda ferðamanni samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Ferðamálaráðs. Hinn týpíski erlendi ferðamaður hefur lítið breyst á þeim átta árum sem liðin eru frá því Ferðamálaráð hóf að gera kannanir meðal ferðamanna, en á tímabilinu hefur þeim þó fjölgað um 80 prósent. Um 2500 tóku þátt í könnuninni í ár og eins og áður nefna langflestir svarenda náttúruna og landið þegar spurt er hvaðan hugmynd að Íslandsheimsókn hafi komið. 20 prósent gestanna höfðu komið áður og 80 prósent vilja koma aftur. Langflestir, eða um 60 af hundraði, höfðu ekki séð neina umfjöllun um Ísland áður en haldið var í ferðina. Ríflega helmingur gestanna sagðist vera með tekjur yfir meðallagi eða háar tekjur miðað við meðaltekjur í heimalandi. Greinilegur aldurs- og tekjumunur kom fram eftir því með hvaða flugfélagi þeir ferðuðust. Þannig var meðalaldur svarenda sem nýttu sér þjónustu Iceland Express tæplega 36 ár en í kringum 43 ár hjá farþegum Flugleiða. Þá eru tekjur þeirra sem fljúga með Flugleiðum heldur hærri en farþega Iceland Express. Flestir koma hingað í frí og var meðaldvalarlengd hér á landi um tíu og hálfur dagur. Almenn aukning er í nýtingu afþreyingar af ýmsu tagi, en sem fyrr er náttúruskoðun og sund efst á vinsældarlistanum. Geysir og Þingvellir eru eins og áður þeir staðir sem flestir heimsóttu, enda landið og náttúran þeir þættir sem ferðamennirnir meta jákvæðasta við Ísland. Næst í röðinni er fólkið og síðan þjónustan. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að sem fyrr telja erlendir ferðamenn verðlag hér á landi neikvæðasta þáttinn, og svo veðrið.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira