Innlent

Ný brú yfir Kolgrafarfjörð

Snæfellingar fögnuðu mikilli samgöngubót í dag þegar nýr vegur og brú yfir Kolgrafarfjörð voru opnuð fyrir umferð. Það var auðvitað Snæfellingurinn og samgönguráðherrann Sturla Böðvarsson sem fékk þann heiður að opna þetta mikla samgöngumannvirki fyrir umferð með því að aka fyrstur yfir og hlaut fyrir lófaklapp viðstaddra. Bílalestin fylgdi síðan í kjölfarið en þarna voru mættir sveitarstjórnarmenn, alþingismenn svo og fjöldi íbúa á Nesinu, auk yfirmanna vegagerðar með ráðherrajeppann í broddi fylkingar. Þessi langa bílalest er til marks um það hversu mikils Snæfellingar meta þessa samgöngubót en hún styttir leiðina milli byggða á norðanverðu nesinu um sjö kílómetra. En sennilega eru það Grundfirðingar sem fagna mest. Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri Grundarfjarðar, segir þetta langþráða samgöngubót  sem sé mikilvæg fyrir alla Snæfellinga.  Framámenn á utanverðu nesinu fagna einnig nýju brúnni. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar, segir íbúanna munu nota nýju brúna þegar það er norðanátt en muni áfram keyra yfir Fróðarheiði í sunnanátt. Brúargerðin yfir Kolgrafafjörð hófst vorið 2003 en verkinu átti ekki að ljúka fyrr en í október árið 2005. Það er því tíu mánuðum á undan áætlun en samið var við verktakana Háfell og Eykt um að flýta verkinu. En það er ekki aðeins stytting leiðar sem menn fagna heldur ekki síður að losna við erfiðan veg inn í fjarðabotn að sögn bæjarstjóra Grundarfjarðar. Alls kostaði um 900 milljónir króna þvera fjörðinn. Sjálf brúarsmíðin kostaði 250 milljónir en lagning 7,3 kílómetra vegar, að hluta á uppfyllingu, kostaði 650 milljónir króna. Snæfellingar telja að þessir fjármuni eigi eftir að skila miklu til baka. Byggðalögin komist með þessu í slíkt samband að hægt sé að kalla þau eitt atvinnusvæði og t.a.m. sé hægt að keyra daglegan skólaakstur í framhaldsskólann á Grundarfirði frá hinum byggðalögunum. En brúin mun ekki aðeins flytja bíla í framtíðinni heldur einnig heitt vatn. Handan við hana er nefnilega jarðhiti og næsta stórverkefni Grundfirðinga er að leggja hitaveitu.  



Fleiri fréttir

Sjá meira


×