Skólagjöld í skötulíki? 13. desember 2004 00:01
Fyrir skömmu samþykkti meirihluti Alþingis frumvarp sem kveður á um að hækka skráningargjöld við Háskóla Íslands um tæp 40 prósent. Stúdentaráð hefur lengi barist gegn hækkun innritunargjalda og gagnrýndi Dagnýju Jónsdóttur harðlega fyrir að sitja hjá við atkvæðagreiðslu, en ekki greiða atkvæði gegn frumvarpinu. Dagný var framkvæmdastjóri stúdentaráðs fyrir fáum árum og lagðist þá eindregið gegn hækkun skráningargjalda. Er rétt að kalla gjaldið skráningargjald? Innritunargjald í Háskóla Íslands er núna 32,500 krónur fyrir hvert ár, en hækkar upp í 45 þúsund krónur þegar hækkunin tekur gildi. Gjaldið speglar ekki aðeins kostnað við innritun í Háskóla Íslands, því það er að hluta til notað til að standa straum af rekstri skólans. Því segja stúdentar að innritunargjaldið sé í rauninni skólagjald í skötulíki sem sé með öllu óþolandi því það dragi úr jafnrétti til náms. LÍN lánar ekki Samkvæmt reglugerðum Lánasjóðs íslenskra námsmanna er gert ráð fyrir sjálfsfjármögnun stúdenta sem nemur allt að 35 þúsund krónum. Upphæðin er endurskilgreind árlega og gildir um hvort tveggja skóla- og innritunargjöld. Hingað til hafa stúdentar því ekki getað fengið lán fyrir skráningargjaldinu. Árleg endurskráning þeirra sem eru í Háskólanum fer fram í apríl en innritun nýnema er í maí og júní. Þessu hafa stúdentar mótmælt á grundvelli þess að flestir geti illa séð af peningunum á þessum tíma þar sem þeir séu ekki í fullri vinnu. Málsvörn Dagnýjar Dagný varði ákvörðun sína og segir að þegar hún hafi veitt stúdentaráði forystu hafi tilraunir til hækkunar innritunargjalda ekki verið til þess fallnar að efla rekstur skólans. Í þessu tilfelli sé sá rökstuðningur fyrir hendi að hækkun gjaldsins muni auka gæði Háskólans og verði því stúdentum til hagsbóta. Hún taldi þó að rétt væri að kalla gjaldið öðru og réttara nafni en skráningargjald og kaus því að sitja hjá við atkvæðagreiðslu.
Fréttir Innlent Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fleiri fréttir Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Sjá meira