Stuldur á við kostnað menntakerfis 12. desember 2004 00:01
Skattsvikarar stela jafn miklu af samfélaginu á hverju ári og kostar reka allt skólakerfið á Íslandi. Skattsvikin eru talin nema allt að þrjátíu og fimm milljörðum. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður fagnar tillögum starfshóps fjármálaráðherra sem vill stórefla skatteftirlit og veita eftirlitsmönnum auknar heimildir til að fylgjast með stórfyrirtækjum og afla upplýsinga um bankainnistæður og fjármagnsflutninga. Jóhanna segir tillögur starfshópsins róttækari en dæmi séu um hér á landi. Hún segir um miklar fjárhæðir að ræða, sem séu sambærilegar því sem það kosti að reka allt mennakerfið á Íslandi. Því sé eftir miklu að slægjast að ná þessum peningum til baka. Menn hafi fundið nýjar leiðir til skattsvika, sem verði að taka á. Einstaklingar og fyrirtæki nýta sér í auknum mæli svokallaða skattaparadís erlendis til að koma tekjum undan skatti. Þá kemur fram í skýrslu starfshópsins að hætta sé á því að menn misnoti heimild til að fresta því að greiða skatt af söluhagnaði af hlutabréfum með milligöngu eignarhaldsfélaga. Sem upplagt tilefni skattsvika er einnig nefnt að Ísland sé eitt örfárra landa sem ekki leggja skatt á vexti sem greiddir eru úr landi. Fyrirtæki setja upp eignarhaldskeðjur þar sem félag erlendis er látið lána hinum innlenda fé gegn háum vöxtum sem eru skattfrjálsir. Jóhanna Sigurðardóttir segir mikilvægt að efla skattaeftirlit og hún fagnar einkum tillögum starfshópsins um að sérstök deild innan skattkerfisins fylgist með stórfyrirtækjum. Hún nefnir til að mynda tillögu um að skattayfirvöld fái heimild til þess að skoða allar innistæður í bönkum, sem sé tillaga sem skattayfirvöld telji að verði að ná fram að ganga. Rúmlega tuttugu þúsund einkahlutafélög er að finna á Íslandi en þeim hefur fjölgað um 7000 á fjórum árum. Algeng aðferð við skattsvik er að færa alla sína einkaneyslu á fyrirtæki eða félög og komast þannig hjá skattgreiðslum. Þá finnast þess einnig dæmi að hluti launa, til dæmis bónus eða kaupréttur, sé ekki gefin upp til skatts og hluthöfum veitt vaxtalaus lán sem ekki eru gerð upp. Jóhanna segir að skattaeftirlitið sé vanbúið eins og það er í dag. Reynslan kenni að hver starfsmaður til viðbótar margborgi sig. Hún segir nauðsynlegt að taka á þessu máli strax á vorþingi. Það sé ekki hægt að búa við það að almenningur greiði sína skatta, en í skattalögum séu glufur sem geri það að verkum að fyrirtæki og fjármagnseigendur geti greitt enn minna til samfélagsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Krefjast þess að náttúruhagsmunir verði settir ofar fjárhagslegum hagsmunum Dalsbús Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Sjá meira