Leigumarkaðurinn hefur batnað 11. desember 2004 00:01
Staðan á leigumarkaði hefur batnað mikið síðustu ár, að mati nefndar sem félagsmálaráðherra skipaði til að fara yfir stöðuna á leigumarkaði og koma með tillögur til úrbóta. Nefndin var skipuð í júlí á síðasta ári og skilaði hún niðurstöðum í síðasta mánuði. Meðal þess sem nefndin gerði var að fela IMG Gallup að gera könnun á leigumarkaði og ráðuneytið safnaði upplýsingum um biðlista eftir félagslegu húsnæði. Nefndin telur niðurstöður úr könnun Gallup um meðalhúsaleigu koma verulega á óvart. Samkvæmt könnuninni er meðalhúsaleiga rúmar 44 þúsund krónur á mánuði og í meirihluta tilfella er hiti og hússjóður innifalið í leigunni. Þá kom fram í könnuninni að meirihluti leigjenda er með undir 250 þúsund krónum á mánuði í fjölskyldutekjur, 36% leigjenda eru einhleypir og barnlausir. Þá vekur það athygli að hátt í 83% telja sig búa í öruggu húsnæði. Fyrir ári voru 2700 umsækjendur á biðlista eftir félagslegu húsnæði, þar af 2400 á höfuðborgarsvæðinu. Í tillögum nefndarinnar er gert ráð fyrir húsaleigubótakerfið verði þróað til að efla enn frekar aðstoð við þá sem við lökust kjör búa. Þá telur nefndin að til álita komi að veita stofnstyrki til byggingar leiguíbúða fyrir sérstaka hópa, svo sem aldraða, öryrkja og námsmenn sem búa við erfiðar aðstæður og eru með lágar tekjur, auk þess sem leita mætti leiða til að lækka byggingarkostnað leiguhúsnæðis og auka þurfi lóðaframboð. Eins og fyrr segir telur nefndin að staðan á leigumarkaðnum hafi batnað mikið síðustu ár og framboð af nýjum leiguíbúðum hafi aldrei verið meira.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira