Árni Johnsen þjófkennir Steingrím 10. desember 2004 00:01
Árni Johnsen hefur bæði í bók og Kastljósi Ríkissjónavrpsins staðhæft að Steingrúmur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, hafi stolið fágætu fiðrildi af skrifstofu þáverandi umhverfisráðherra og fært Steingrími Hermannssyni að gjöf. Athyglisvert vegna þess að sjálfur hefur Árni verið dæmdur í fangelsi fyrir að stela eigum hins opinbera. Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, er mjög ósáttur við framgöngu Árna Johnsen, fyrrum samstarfsmanns síns á Alþingi Íslendinga, sem ber hann þungum sökum í nýrri bók sem hann hefur sent frá sér og nefnir Lífsins melódí. Þar lætur Árni Johnsen að því liggja að Steingrímur hafi stolið forláta fiðrildi í ríkiseigu af skrifstofu þáverandi umhverfisráðherra og farið með í kveðjuveislu til Steingríms Hermannssonar og gefið honum. Sögunni fylgir að áður hafi Steingrímur J. reynt að stela uppstoppuðum fálka en Össur Skarphéðinsson, sem þá var umhverfisráðherra, komið í veg fyrir þjófnaðinn. Lætur Árni Johnsen það fylgja að Steingrímur og Össur hafi verið á fylliríi: Það er dapurlegt þegar menn ýkja og afflytja sannleikann með þeim hætti sem Árni gerir þarna," segir Steingrímur J. og bætir því við að hann sé ekki vanur því að fyrrum félagar taki skemmtisögu eins og þessa og geri úr þann óskapnað sem lesa má um í bók Árna. "Sannleikurinn er sá að við Össur vorum á leið í kveðjuveislu sem haldin var til heiðurs Steingrími Hermannssyni þegar hann hætti í stjórnmálum og fór yfir í Seðlabankann. Vissulega höfðum við Össur verið að skemmta okkur en þetta var á miðju kvöldi," segir Steingrímur J. sem þarna á skrifstofu Össurar í umhverfisráðuneytinu hafði orð á því að eitthvað yrðu þeir að færa Steingrími Hermannsyni að gjöf. Segist Steingrímur fyrst hafa bent á uppstoppaðan fálka en Össur talið af og frá að hægt væri að gefa fyrrverandi forsætisráðherra hann þar sem fálkinn væri í eigu Náttúrufræðistofnunar. Benti Steingrímur þá á einhvern annan hlut í eigu ríkisins en endaði svo á fiðrildi sem stóð á borði Össurar og úr varð að það var tekið með í kveðjusamsætið til Steingríms Hermannssonar. Steingrímur harðneitar því að fiðrildið hafi verið eign ríkisins. Meira í DV í dag.
Fréttir Innlent Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Fleiri fréttir Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Sjá meira