Uppsafnaðar skuldir gamla skólans 8. desember 2004 00:01
Stjórnendur Tækniháskóla Íslands segja bága fjárhagsstöðu skólans tilkomna vegna uppsafnaðra skulda gamla Tækniskólans sem fallið hafi á herðar Tækniháskólans þegar hann var stofnaður um mitt ár 2002. Í frumvarpi til laga um afnám Tækniháskólans segir að skólinn hafi verið rekinn með halla frá því að hann var stofnaður um mitt ár 2002. Stjórnendur skólans segja hann hins vegar hafa verið rekinn hallalausan frá árinu 2002 og gert sé ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu á þessu ári. Í tilkynningunni segir orðrétt: Frumvarp til laga um afnám laga nr. 52/2002 um Tækniháskóla Íslands hefur verið lagt fram á Alþingi. Í greinargerð frumvarpsins sem fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytisins gerir við frumvarpið segir, m.a.:„Tækniháskóli Íslands hefur verið rekinn með halla frá því að hann var stofnaður um mitt ár 2002 og nam uppsafnaður halli 127 m.kr. í árslok 2003. Í kostnaðarumsögn þessari er gert ráð fyrir að hallinn verði á bilinu 110–125 m.kr. um mitt ár 2005 og að hann færist ekki yfir á nýjan skóla.“Eins og fram kom í ræðu menntamálaráðherra á Alþingi 7. desember s.l, þegar hún mælti fyrir frumvarpinu, þá lagði hún áherslu á að uppsafnaður halli skólans er tilkominn vegna gamla Tækniskólans og er það vegna halla, biðlauna og óhagstæðs húsnæðis sem Tækniháskólinn tók yfir við stofnun hans.Stjórnendur Tækniháskóla Íslands vilja taka fram að þegar Tækniháskólinn var stofnaður um mitt ár 2002, tók hann við öllum skuldbindingum Tækniskólans, þar með talið miklum rekstrarhalla, óhagstæðu húsnæði og biðlaunakostnaði starfsmanna. Uppsafnaður halli Tækniskólans hefur ekki enn verið greiddur að fullu. Stjórnendur Tækniháskólans hafa lagt mikla vinnu í það að snúa rekstri skólans við og hefur það tekist mjög vel. Að teknu tilliti til fyrri skuldbindinga hefur Tækniháskólinn verið rekinn hallalaus frá stofnun hans og gera áætlanir ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu árið 2004.
Fréttir Innlent Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Sjá meira