Íslensk hrefna í hitabeltinu 8. desember 2004 00:01
Íslensk hrefna er nú stödd í hitabeltinu samkvæmt frétt á vef Hafrannsóknarstofnunar. Þann 17. nóvember bárust merki um gervitungl frá hrefnu sem merkt hafði verið í Faxaflóa 27. ágúst og voru það fyrstu upplýsingarnar sem bárust frá því dýri. Hrefnan var þá stödd yfir Mið-Atlantshafshryggnum, um 500 sjómílur vestur af Norður-Spáni. Merkið er einungis virkt á sex daga fresti til að auka endingartíma rafhlöðunnar og þann 23. nóvember bárust aftur sendingar frá hrefnunni sem þá hafði farið um 700 km sunnar og hélt sig á hafsvæðinu við Azoreyjar. Þann 5. desember bárust enn sendingar frá dýrinu og var það þá statt í Kanarístraumnum, um 1000 km norðvestan við Grænhöfðaeyjar. Hrefnan var þá um 3700 km frá merkingarstaðnum í Faxaflóa. Þessar sendingar eru talsvert sunnar og austar en áður hafa borist frá merktum hrefnum. Hafa ber þó í huga að ekki hefur áður tekist að fylgjast með ferðum hrefna svo langt fram á veturinn og ekkert lát var á suðurferð hinna tveggja hrefnanna þegar síðast bárust sendingar frá þeim (8. nóvember 2002 og 8. október 2004). Ekki er ljóst hvaða leið hrefnan fór á Azoreyjasvæðið en ekki er útilokað að hún hafi fylgt sömu upphafsstefnu og hinar tvær, þ.e. suðvestur eftir Reykjaneshrygg, en síðan sveigt til austurs eftir Mið-Atlantshafshryggnum til Azoreyjasvæðisins. Þótt þessar rannsóknir hafi þegar skilað mikilsverðum upplýsingum um far hrefnu að haustlagi og vonir standi til að frekari upplýsingar fáist frá þessu dýri, er þörf á frekari rannsóknum til að varpa ljósi á hegðun tegundarinnar og aðsetur hennar að vetrarlagi.
Fréttir Innlent Mest lesið Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Innlent „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Innlent HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Innlent Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Innlent Fleiri fréttir Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Segir Reykjavík að verða að Mekka vændisiðnaðar Trúði ekki að siglt yrði úr höfninni: „Mér leið svo illa, ég fór að hágráta“ Höfuðvígi vændismansals, mótmælandi sem brotnaði niður og Þingvellir Björgunarsveitir sóttu göngumann við Háafoss Þingið komið í sumarfrí Samþykkja úrræði fyrir fólk sem sæta þarf öryggisráðstöfunum Óljós um tilganginn en þekktu hvert egg Allt eftirlit matvæla undir einni stofnun Boltinn sé hjá fjarskiptafélögunum Sjá meira