Launahækkanir helsti veikleikinn 8. desember 2004 00:01
Stjórn Samtaka atvinnulífsins telur launahækkanir opinberra starfsmanna vera helsta veikleikann í íslenskri efnahagsstjórn á undanförnum árum. Þá þróun verði að stöðva. Í nýrri ályktun frá stjórn Samtaka atvinnulífsins er lýst yfir miklum áhyggjum af verðbólguþróun og gengi krónunnar á næstu misserum. Þar segir að ítrekaðar hækkanir Seðlabankans á stýrivöxtum, ásamt öðrum peningamálaaðgerðum, hafi leitt til 5% hækkunar á gengi krónunnar á aðeins nokkrum dögum. Slíkt jafngildir 15 milljarða tekjulækkun útflutningsgreina á ársgrundvelli. Á sama tíma séu eigi að síður lagðar sértækar álögur á fyrirtæki í útflutningsgreinum og því sé verulega farið að sverfa að fyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni í þeirri stöðu sem nú ríki. Þá gera Samtök atvinnulífsins einnig verulegar athugasemdir við miklar launahækkanir hjá hinu opinbera á undanförnum árum, sem samtökin segja langt umfram það sem almennur vinnumarkaður hafi haft tök á að standa undir. Þetta sé þróun sem verði að telja einn helsta veikleika íslenskrar efnahagsstjórnar og henni verði að linna. Umsvif ríkisins á fasteignamarkaði eru einnig átalin og bent á að starfsemi Íbúðalánasjóðs ýti undir enn frekari aukningu útlána, einkaneyslu og verðbólgu. Staða sjóðsins í samkeppni á íbúðalánamarkaði séu í andstöðu við allar hugmyndir um heilbrigða samkeppni og aðkomu ríkisins að samkeppnisrekstri. Samtök atvinnulífsins telja að aðhald í ríkisfjármálum verði ekki nægjanlegt til þess að draga úr þenslu og verðbólguþrýstingi. Því hvetja samtökin eindregið til þess að markmið fjárlaga náist og helst verði af þeim töluverður afgangur á næstu árum svo að góðum hagvexti þurfi ekki að fylgja eins mikil hækkun vaxta og gengis krónunnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira