Byggja þyrfti nýja flugstöð 29. nóvember 2004 00:01
Til eru áætlanir um nýja byggingu norðaustanmegin við núverandi flugstöð á Keflavíkurflugvelli þar sem þjónusta við áætlunarflug innanlands færi fram. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, segir að vélar í innanlandsflugi hafi stöku sinnum þurft að lenda á vellinum, en þá hafi verið gripið til sértækra aðgerða þannig að þeir farþegar blönduðust ekki öðrum í millilandaflugi. Heimir Már Pétursson, upplýsingafulltrúi Flugmálastjórnar, sem sér um rekstur innanlandsflugvalla í landinu, telur illframkvæmanlegt að hafa innanlandsflugafgreiðslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og taldi alveg ljóst að innanlandsflug yrði ekki flutt í skyndingu yfir á Keflavíkurflugvöll. "Það þyrfti að gera ráðstafanir út af Schengen. Svo er sú starfsemi sem fram fer í Leifsstöð ólík þeirri sem fram fer í hefðbundnu innanlandsflugi. Allir farþegar á Keflavíkurflugvelli sem komnir eru inn fyrir vopnaleit og annað eru komnir inn á lokað alþjóðlegt flugumferðarsvæði. Ef koma ætti innanlandsumferðinni þar inn þyrfti miklar tilfæringar og það myndi ekki gerast á nokkrum dögum eða vikum," sagði hann. "Í áætlunum sem bæði flugvallaryfirvöld og Flugstöð Leifs Eiríkssonar hafa gert er gert ráð fyrir því að innanlandsflug gæti flust á Keflavíkurflugvöll frá Reykjavík. Enda væri óeðlilegt að gera ekki ráð fyrir þeim möguleika því sá flugvöllur er bara með starfsleyfi til ársins 2016," segir Björn Ingi Knútsson, flugvallarstjóri á Keflavíkurflugvelli. "Spurningin er svo bara hvernig þessir hlutir koma til með að líta út í framtíðinni, með tilliti til Keflavíkurflugvallar og samræmdrar samgönguáætlunar," segir hann og áréttar að ekki sé búið að ákveða neitt í þessum efnum. Björn Ingi segir að í áætlunum um nýju bygginguna sé einnig gert ráð fyrir að hún gæti líka tengst hugsanlegri járnbraut sem uppi hafi verið hugmyndir um að leggja fyrir nokkru. "Þetta voru svona framtíðarvangaveltur," segir hann, en telur ólíklegra að af lagningu járnbrautar milli Reykjavíkur og Keflavíkur verði eftir að tekin var ákvörðun um að tvöfalda Reykjanesbrautina.
Fréttir Innlent Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Innlent Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Erlent Fleiri fréttir Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Skora á Bubba að taka sér pásu frá laxveiði og mæta „Ég hef verið kölluð þingmaður dauðans“ Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“