Innlent

Farið í grunnskóla

Slökkvillið höfuðborgarsvæðisins fer nú sem eldur í sinu á milli grunnskóla á höfðuborgarsvæðinu og brýnir fyrir börnunum að sýna aðgát í tengslum við jólaskreytingar og kanna hjá foreldrum sínum hvort að brunavarnir séu í lagi. Það er árlegur siður hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu og reyndar víðar um land, að heimsækja 8 ára börn í skólann og fræða þau um hættur af eldi, hvernig hægt sé að tryggja öryggi sitt með reykskynjurum og slökkvitækjum og hvað eigi að gera kvikni eldur heima. Börnunum var sýndur margs konar búnaður slökkviliðsins sem og sjúkrabíll, enda hætturnar í umferðinni margar. Þá eru börnin send heim með spurningarlista fyrir foreldra sína varðandi eldvarnir á heimilinu. Þetta er auðvitað gert af gefnu tilefni, enda fjölgar útköllum verulega fyrir jól. Slökkviliðið er á því að þessar heimsóknir skili árangri. Gunnar Örn Pétursson, stöðvarstjóri, segist ekki í nokkrum vafa um að heimsóknirnar skili sér, enda spyrji börnin margs og börnin muni koma heim til sín og spyrja foreldra sína, sem muni vart geta vikið sér undan.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×