Innlent

Ekkert gert í matarverðinu

Himinhátt matarverð hér á landi er ekkert nýtt, segir formaður Neytendasamtakanna. Það hafi hins vegar aldrei verið gert neitt í því. Við greindum í gær frá fyrirhugaðri rannsókn samkeppnisyfirvalda á Norðurlöndum á matvælaverði eftir að í ljós kom að það væri margfalt hærra en í ríkjum Evrópusambandsins. Hér á landi er það til að mynda 56% hærra. Ýmsar ástæður hafa verið nefndar, til að mynda vörugjöld og skattar. Jóhannes Gunnarsson hjá Neytendasamtökunum telur þetta stærstu þættina. Hann segir hátt verð á landbúnaðarvörum skýrast af tollamúrum og háum tollujm af vörum erlendis frá. Erfitt sé þó að skýra mikinn mun á verði á brauði og gosi svo dæmi séu tekin. Jóhannes segir einnig ljóst að flutningskostnaður á innfluttum varningi sé töluvert meiri hér á landi en víðast hvar, sökum legu landsins. Hátt matvælaverð hér á landi sé ekkert nýtt, heldur hafi kannanir og rannsóknir margoft leitt þetta í ljós. Hann segir hins vegar ekkert hafa verið gert í málunum. Engan veginn sé hægt að réttlæta þann verðmun sem ríki í dag og hann sé óásættanlegur fyrir íslenska neytendur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×