Innlent

Sekt verði borguð á staðnum

Mönnum gefst nú kostur á að ljúka málum fyrir umferðarlagabrot með sekt á vettvangi, verði nýtt frumvarp dómsmálaráðherra að lögum. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra mælti í dag fyrir frumvarpi um breytingu á meðferð opinberra mála og frumvarpi um fullnustu refsinga. Ráðherrann dró síðara frumvarpið til baka í fyrra eftir að alvarlegar athugasemdir höfðu verið gerðar við það. Fyrra frumvarpið felur í sér að lögregla getur lokið málum sem fela í sér minniháttar afbrot með sektargreiðslu á vettvangi. Sektin má þó aldrei vera hærri en fimmtíu þúsund og heimildin er háð ákveðnum skilyrðum. Samkvæmt Birni eru skilyrðin þau að sakborningur gangist skýlaust fyrir broti, í öðru lagi verði að vera skilyrði til að ljúka máli samkvæmt 150. grein laganna. Í þriðja lagi megi sektin ekki ná meira en 50 þúsund krónum. Ekki verður lengur nauðsynlegt að birta mönnum dóma þar sem ákærði er dæmdur til upptöku eigna eða greiðslu sekta, sæki ákærði ekki dómþing. Áfram verður þó skylt að birta mönnum skilorðsbundna jafnt sem óskilorðsbundna fangelsisdóma. Þá felur frumvarpið jafnframt að heimilt verður að ljúka fjárnámi hjá sýslumanni ef skuldarinn mætir ekki og er ekki löglega forfallaður án þess að skuldarinn mæti. Björn Bjarnason sagðist hafa ákveðið að afturkalla frumvarpið í ljósi þeirra athugasemda og ábendinga sem hefðu komið fram. Nýtt frumvarp hefði verið samið í góðu samstarfi við nýjan fangelsismálastjóra. Bryndís Hlöðversdóttir þingmaður Samfylkingar fagnaði því að breytingar hefðu verið gerðar á frumvarpi um fullnustu refsinga og sagði að nýr tónn hefði verið sleginn. Hún tók meðal annars dæmi af auknum heimildum lögreglu til símhlerana og líkamsleitar og aukinni heimild til valdbeitingar, sem hefði verið allt of opin í fyrra frumvarpinu. Bryndís sagði að um hefði verið að ræða allt að því óútfyllta ávísun til handa starfsmönnum fangelsa til þess að beita valdi við framkvæmd skyldustarfa.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×