Legoland-garðarnir seldir? 22. október 2004 00:01
Einn af aðaleigendum Lego er hættur sem framkvæmdastjóri leikfangafyrirtækisins eftir að áætlanir um að rétta af rekstur þess mistókust. Meira tapi er spáð í árslok en raunin varð í fyrra og kemur til greina að selja Legoland-skemmtigarðana. Stefnt var að núllinu á þessu ári eftir sautján milljarða íslenskra króna tap í fyrra. Þá var framkvæmdastjórinn rekinn og einn stærsti hluthafinn í fjölskyldufyrirtækinum Lego, Kjeld Kirk Kristiansen, tók við. Undir hans stjórn stefnir í meira tap í árslok - allt að 25 milljarða íslenskra króna fyrir skatta. Í tilkynningu frá Lego orðar Kjeld það þannig að hann telji núna rétta tímann fyrir framtíðarstjórnendur að taka við áætlunum hans um bættan fjárhag sem hann hafi unnið að frá ársbyrjun. Stjórnin verður áfram óbreytt og hann varaformaður hennar. Kjeld hefur undanfarið lækkað um nokkur sæti á lista Forbes-tímaritsins yfir ríkustu menn í heimi og er nú númer 205. Ástæða slæms efnahags Lego er léleg sala í Bandaríkjunum og Japan og auk þess segir fyrirtækið að hörð samkeppni á leikfangamarkaði haldi verðinu niðri. Þrátt fyrir aukna sölu í Suður- og Austur-Evrópu hefur heildarsala í álfunni verið minni en í fyrra og er þar meðal annars um að kenna að Lego hefur ekki náð að anna spurn eftir vinsælustu vörutegundunum. Lego segir að kostnaður hafi reyndar minnkað um 15 milljarða íslenskra króna undanfarið ár og stöðugildum hafi fækkað um eitt þúsund en starfsmenn fyrirtækisins eru nú ríflega sjö þúsund. Til að rétta úr legokubbunum íhugar fyrirtækið nú að selja fjóra Legoland-garða sína sem eru í Billund í Danmörku, Bretlandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Fleiri fréttir Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Sjá meira