Bandaríkin saka Ísrael um njósnir 28. ágúst 2004 00:01
Stjórnvöld í Ísrael hafa í dag þverneitað því að hafa stundað njósnir í varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna. Rannsókn er hafin á því hvort embættismaður í ráðuneyti Rumsfelds hafi stolið trúnaðarupplýsingum um Miðausturlönd og smyglað þeim áfram til Ísraels. Málið hefur þegar valdið miklu fjaðrafoki enda ekki á hverjum degi sem svo nánar vinaþjóðir saka hvor aðra um njósnir. Grunur leikur á að njósnarinn hafi starfað á skrifstofu Douglas Feiths sem er einn af nánustu ráðgjöfum Donalds Rumsfelds varnarmálaráðherra en Feith þessi var meðal helstu hugmyndafræðinga Bandaríkjastjórnar í innrásinni í Írak. Talið er að embættismaðurinn hafi bæði komið upp hlerunarbúnaði í varnarmálaráðuneytinu og stolið trúnaðarupplýsingum um Miðausturlönd, sérstaklega Íran. Þessum gögnum hafi síðan verið komið til Ísraels með aðstoð ísraelskra hagsmunasamtaka sem hafa höfuðstöðvar sínar í Washington. Með þessu móti hafi Ísraelsstjórn reynt að freista þess að hafa áhrif á stefnumótun Bandaríkjastjórnar í þessum heimshluta. Ef satt reynist getur þetta mál haft gríðarleg áhrif til hins verra á samskipti Bandaríkjanna og Ísraels og grafið undan stefnu Bandaríkjastjórnar í Miðausturlöndum. Enginn hefur enn verið handtekinn og sá sem grunaður er um njósnirnar hefur ekki verið nafngreindur. Stjórnvöld í Ísrael segja þessar ásakanir út í hött. Yuval Steinitz, sem er í utanríkismálanefnd ísraelska þingsins, segir Ísrael hafa ákveðið að njósna ekki um Bandaríkin og að hann sé viss um að þeirri ákvörðun hafi verið fylgt eftir. Hann segist samt ekki geta fullyrt neitt um málið að svo stöddu.
Erlent Fréttir Mest lesið Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira