Blóðbað í Najaf 26. ágúst 2004 00:01
Blóðsúthellingar einkenndu fyrsta dag tilrauna æðsta klerks sjíta til friðarumleitana í helgu borginni Najaf í dag. Þangað eru tugir þúsunda Íraka komnar til að hlýða kalli trúarleiðtoga. Vonir um að Ali Husseini al-Sistani, æðsti klerkur Sjíta í Írak, gæti borið klæði á vopnin í Najaf, dofnuðu í dag þegar hann kom ásamt fylgdarliði til borgarinnar. Skömmu áður var gerð árás á mosku í nágrannaborginni Kúfa, þar sem hundruð stuðningsmanna harðlínuklerksins al-Sadrs bjuggu sig undir að halda til Najaf. Sprengjum var varpað á moskuna og féllu 25. 20 stuðningsmenn al-Sistanis féllu einnig þegar skotið var á hóp þeirra í Kúfa. Í Najaf féllu tíu fylgismenn al-Sistanis þegar byssumenn hófu skothríð á lögreglu sem reyndi að stýra mannfjöldanum sem kominn var til borgarinnar. Tugir þúsunda hafa haldið þangað til að hlýða kalli bæði al-Sistanis og al-Sadrs. Þrátt fyrir mikla spennu í borginni hermdu arabískir fjölmiðlar síðdegis að umleitanir væru hafnar á milli al-Sistanis og manna al-Sadrs. Al-Sistani hafði áður kynnt hugmyndir um að Mehdi-sveitir al-Sadrs hyrfu úr Imam Ali moskunni og leggðu niður vopn, og að hersveitir í kring hörfuðu. Til að liðka fyrir samningum hét forsætisráðherra Íraks, Iyad Allawi, sólarhrings vopnahlé. Engu að síður voru líkhúsin full í lok dags og hundruðir lágu slasaðir á sjúkrahúsum í Kúfa og Najaf.
Erlent Fréttir Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Fjörutíu ár frá slysinu í Tsjernobyl: „Eins og heimurinn gæti snúið aftur til ársins 1986“ Trump segir komið að Írönum að hringja Sjö felldir í Úkraínu Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Orbán hættir á þingi Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Vinasamtök al-Qaeda sögð reyna að steypa ríkisstjórninni af stóli Gerðu árás á mörgum stöðum á sama tíma Gasabúar kjósa í fyrsta sinn í tuttugu ár Segja engan fund á dagskrá Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Netanjahú greindist með krabbamein Sendimenn Trump fara á fund utanríkisráðherra Írans á morgun Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Ræða ekki loftslagsmál á umhverfisfundi til að friðþægja Bandaríkjastjórn Sækir aftur um reynslulausn Handtaka hermann sem veðjaði á að Maduro yrði tekinn Sefur í kjallaranum þar sem Heuermann myrti og sundurlimaði fórnarlömb sín Lánið í höfn og Harry veitir Trump óumbeðin ráð Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Fyrirtæki MrBeast sakað um að afsaka kynferðislega áreitni Skjóta á alla báta sem leggja tundurdufl Með lista yfir góða og slæma bandamenn Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Sjá meira