Morðingi laus í London 21. ágúst 2004 00:01
Tuttugu og tveggja ára frönsk kona var myrt í Twickenham-hverfi, í suðvesturhluta Lundúnaborgar í fyrrinótt. Þetta er fimmta árásin af þessu tagi, sem gerð hefur verið í hverfinu, á skömmum tíma. Óttast er að einn og sami maðurinn hafi verið að verki í öll skiptin. Emelie Delagrange, lést á sjúkrahúsi í fyrrinótt af völdum höfuðáverka. Delgrange, sem var nýkomin til Bretlands til að læra ensku, fannst mikið slösuð í almenningsgarði í hverfinu og lést skömmu síðar. Lögregla kannar nú hvort einhver tengsl séu á milli dauða hennar og dauða 19 ára breskrar stúlku, Mörshu McDonnel, sem einnig fannst látin í almenningsgarði í hverfinu á síðasta ári. McDonnel lést einnig af völdum höfuðáverka. Lögreglan handtók nokkra í tengslum við morðið á McDonnel í fyrra, en enginn var ákærður. Á síðasta ári var einnig ráðist á tvær stúlkur, 17 og 18 ára gamlar, á svipuðum slóðum, og fyrr á þessu ári var þar ráðist á konu á fertugsaldri. Lögreglan segir óvíst að árásirnar tengist, en fólk í Twickenhamhverfinu er skelfingu lostið.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Sjá meira