Erlent

Tugþúsundir mótmæltu niðurskurði

Rúmlega 60 þúsund Þjóðverjar komu saman í gær og mótmæltu fyrirætlunum þýskra stjórnvalda um niðurskurð í velferðarkerfinu. Flestir komu saman í borginni Leipzig, þar söfnuðust um tuttugu þúsund manns saman, en mótmæli fóru einnig fram í Berlín, Magdeburg og fleiri borgum. Mótmælendur kröfðust afsagnar Gerhards Schröder kanslara og sögðu hann bera ábyrgð á stigvaxandi atvinnuleysi í austurhluta Þýskalands. Schröder stendur höllum fæti samkvæmt skoðanakönnunum og sósíaldemókratar hafa tapað mörgum sveitarstjórnarkosningum undanfarið.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×