Erlent

Belgíska þjóðin syrgir

Konungur Belgíu, Albert annar, heimsótti í dag og huggaði fjölskyldur þeirra sem létust í stórri gassprengingu 30 kílómetra frá bænum Ghislenghien. Þá fór hann að slysstað og vottaði hinum látnu þar með virðingu sína. Fánar blöktu í hálfa stöng um allt land en 16 létust í sprengingunni og 120 særðust. Þar af eru 30 enn alvarlega slasaðir. Slysið átti sér stað snemma á föstudaginn eftir að iðnaðarmenn gerðu slökkviliði viðvart um að hafa skemmt neðanjarðar gasleiðslu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×