Lífið

Þriðja hjónaband Cage

Stórleikarinn og óskarsverðlaunahafinn Nicolas Cage hefur nú gift sig í þriðja sinn, aðeins tveimur mánuðum eftir skilnað sinn við eiginkonu sína Lisu Marie Presley. Hjónaband þeirra slitnaði aðeins fjórum mánuðum eftir giftingu þeirra árið 2002, en áður var Cage, sem er fertugur, giftur leikkonunni Patriciu Arquette í sex ár. Nú hefur hann gifst fyrrverandi sushi gengilbeinu, ættaðri frá Kóreu, Alice Kim, sem er tvítug. Þau hittust fyrir fimm mánuðum síðan á suhsi veitingastað í Los Angeles.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.