Flugher berst við engisprettur 31. júlí 2004 00:01
Engisprettufaraldur af nánast biblíulegri stærðargráðu herjar nú á nokkur lönd í Vestur-Afríku. Mörg hundruð ferkílómetra engisprettuský herja á akra álfunnar og er óttast að hungursneyð og dauði geti fylgt í kjölfarið. Forseti Senegals hefur beðið Bush Bandaríkjaforseta um aðstoð og um að lýsa yfir stríði gegn engisprettum. Verst er ástandið á Malí og í Máretaníu, en í þessum löndum er vitað um nálægt eitthundrað engisprettuský sem nánast éta sig í gegnum landið, en engispretturnar geta ferðast um 130 kílómetra á einum degi. Engisprettur éta jafngildi þyngdar sinnar á dag, og þó svo að hver engispretta vegi rétt um tvö grömm ber þess að gæta að í einum ferkílómetra af engisprettuskýi eru um 80 milljónir engispretta. Eitt engisprettuský getur verið hundruð ferkílómetra að stærð og því ljóst að þessi plága étur fleiri tonn á dag, en ein af plágunum sjö sem lýst er með afar myndrænum og áhrifamiklum hætti í Opinberun Jóhannesar, níunda kafla fjallar um engisprettur sem herja eiga á menn um fimm mánaða skeið og valda þeim miklum þjáningum. Svo þykkur er engisprettumökkurinn í Vestur Afríku að hann sést greinilega á myndum sem teknar eru úr gervitunglum, og í Máretaníu er málið litið það alvarlegum augum að flugherinn hefur verið sendur á loft til að berjast við þennan vágest. Forseti Senegals hefur í bréfi til leiðtoga voldugustu ríkja heims, þar á meðal til Bush Bandaríkjaforseta, hvatt til þess að lýst verði yfir stríði gegn engisprettunum og segir hann í bréfi sínu að þær geti valdið dauða hundruð milljóna manna. Fyrir sjö árum reið sambærilegur engisprettufaraldur yfir Vestur Afríku og kostaði yfir tuttugu milljarða íslenskra króna að ráða niðurlögum hans.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Innlent Fleiri fréttir „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Sjá meira