Erlent

Kerry vill endurskipuleggja

John Kerry, forsetaframbjóðandi Demókrataflokksins í Bandaríkjunum sagði á þingi flokksins í gær að nái hann kjöri muni hann endurskipuleggja starfsemi leyniþjónustunnar hið fyrsta og vill hann að hún byggi á staðreyndum, sem stjórnmál eigi ekki að hafa áhrif á. Kerry sagðist einnig ætla að lækka skatta miðstéttarinnar. Repúblikanar hafa haft hægt um sig á meðan á þingi Demókrata hefur staðið en nú mun Bush fara af stað á ný og mun hann heimsækja ríkin Missouri, Michigan og Ohio á næstunni, en í þeim ríkjum verður baráttan hvað hörðust.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×