Lífið

Die Hard 4 á leiðinni

Leikarinn Bruce Willis og leikstjórinn John McTiernan ætla að gera fjórðu myndina um lögguna John McClane og ævintýri hans í Die Hard. McTiernan ætti ekki að vera ókunnugur verkefninu því hann leikstýrði fyrstu Die Hard myndinni og þeirri þriðju. Finninn Renny Harlin gerði hins vegar aðra myndina. Handritshöfundar verða Doug Richardsson, sem skrifaði síðustu mynd Willis, Hostage, og Marc Bomback, sem skrifaði handritið að Godsend. Tökur hefjast næsta sumar en myndin hefur enn ekki fengið nafn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.