Innlent

Skaginn skrýddur

Listaverkið Hringrás eftir Ingu S. Ragnarsdóttur vann samkeppni um útilistaverk á lóð Sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar Akraness. Alls höfðu 30 listamenn sent inn umsókn um þátttöku og voru þrír þeirra valdir til að fullvinna hugmyndir sínar.

Í umsögn dómnefndar segir að verkið komi til með að njóta sín hvort sem horft sé úr gluggum sjúkrahússins eða fyrir gesti og gangandi íbúa Akraness. Listskreytingasjóður ríkisins styrkti gerð þess um fjórar milljónir króna, samkvæmt fréttatilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×