Rokkað á Bessastöðum 30. júní 2004 00:01
Í síðustu viku kom út frekar athyglisverð plata. Í rauninni er um tímamótaverk í tónlistarsögunni að ræða því þetta er fyrsta tónleikaplatan sem hljóðrituð var á forsetasetrinu að Bessastöðum. Það er hljómsveitin Trabant sem braut þennan ófyrirsjáanlega hljóðmúr. Trabant leika skemmtilega blöndu hipphopp, fönks, rokks og raftónlistar og eru án efa rísandi stjörnur í tónlistarlífi Klakans. Þeir eru vinsælir í veislurnar, enda eiga þeir það til að rífa utan af sér fötin og láta öllum illum látum á tónleikum. Herra Ólafur Ragnar kann greinilega að meta það, eða hvað? "Ólafur Egilsson listamaður er hress og er leitandi í tónlist og þegar það kom upp á dyrnar að halda ætti boð honum til heiðurs á Bessastöðum hafði hann samband við okkur," útskýrir trommuleikarinn Þorvaldur Gröndal, eða Doddi eins og vinir hans kalla hann. "Hann bað um að við yrðum húsbandið í veislunni. Svo blandaði Dorrit sér í málið og hún er svo rosalega hress að þau börðust fyrir því að við spiluðum, og fengu það í gegn." Trabant spilaði tvö sett á efri hæð Bessastaða og tóku ferðahljóðverið sitt með. Fyrst spilaði Trabant á undan matnum, en þá voru flestir niðri að hlýða á djasstónlist. Síðar um kvöldið, þegar meira fjör var komið í leikinn, var sveitin beðin um að leika aftur. Bæði Ólafur Ragnar og forsetafrúin stigu þá dans við tóna Trabant. Á plötunni eru að finna tvö lög, auk ávarps forsetans úr veislunni. "Þar þakkaði hann mönnum fyrir og nefndi það að þetta væri í fyrsta skiptið í sögu forsetaembættisins sem græjuhljómsveit spilaði að Bessastöðum. Í öðru laginu spila svo djassarnir Tómas R, Óskar og Ómar Guðjónssyni með okkur. Þeir komu upp og við spunnum allir saman lag á staðnum." Skiljanlega voru liðsmenn Trabant öllu virðulegri á Bessastöðum en annars staðar. Ragnar Kjartansson söngvari á það til að líma dúsk á geirvörtur sínar, sem hann hristir svo eins og fatafella. Viddi bassaleikari á það svo til að klæða sig úr öllu nema g-strengs hlébarða nærbuxum. "Raggi tók svona hátíðarútgáfu af þessu stripp-sjói sínu," segir Doddi. "Þó maður sé að spila á svona uppákomum þá verður þetta að vera með. Við fengum þó ekki að vera með sprengjur. Skrýtið." Trabant hafa greinilega slegið í gegn í veislunni því greifynja frá Sviss sem þar var stödd pantaði sveitina í afmælisveislu sína sem haldin var fyrir tveimur vikum síðan. "Dorrit er góð vinkona þessarar barónessu, Francescu von Habsburg. Hún er líka listaverkasafnari. Hún bauð okkur út að spila og þar var allt fullt af mat, listaverkasöfnurum og öðrum milljarðamæringum," segir Doddi að lokum, vanur því að skemmta ríka fólkinu. Aðeins verða gerð 500 númeruð eintök af Bessastaðaplötunni og er hún fáanleg í 12 Tónum. Herra Ólafur Ragnar Grímsson fær auðvitað afhent eintak númer 1. Trabant eru að hljóðrita aðra breiðskífu sína þessa dagana. Ný smáskífa, Nancy Boy, fær útgáfu í haust. Á henni verða m.a. að finna endurhljóðblandanir frá Moloko, Gusgus og Capt. Comatose. Breiðskífan fylgir svo í kjölfarið. biggi@frettabladid.is
Mest lesið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni „Við erum öll nóg“ Lífið Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið „Sjálfsvinna er ævistarf“ Lífið „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Lífið „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ Lífið „Ég ræð ferðinni“ Lífið Jökull og Telma hvort í sína áttina Lífið Fleiri fréttir Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Páskabingó Blökastsins Úr Brúðkaupsþættinum Já yfir í að þjálfa leiðtoga Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Þá spurði ég hann hvort hann vildi gamla eða nýja ísinn“ Mótefni gegn afmennskun og kúgun Var sagt að þetta væri „hluti af því að vera kona“ Hundrað skvísur blómstruðu saman Sjá meira