Norðmenn æfir yfir skólakönnuninni 7. desember 2004 00:01
Niðurstaða alþjóðlegrar rannsóknar, Pisa, á lestrar-, stærðfræði- og náttúrufræðikunnáttu 15 ára barna hefur vakið geysilega harðar umræður í Noregi, ekki síst þar sem þetta er ekki fyrsta rannsóknin sem sýnir lélega kunnáttu norskra grunnskólabarna. Og þekkingin versnandi fer. Norsk grunnskólabörn koma verr út úr könnuninni en þau íslensku í tveimur fögum af þremur. Meðan Íslendingar eru í 14. sæti í stærðfræði eru norsku börnin í 22. sæti af 41 og í náttúrufræði standa báðar þjóðir illa, Íslendingar þó sýnu betur en Norðmenn. Íslendingar eru í 21. sæti og Norðmenn í 28. sæti. Í lestri standa Norðmenn hinsvegar betur en Íslendingar. Norsk skólabörn eru í 12. sæti en þau íslensku í 20. sæti. Rannsóknin sýnir að Norðmenn standa norðurlandaþjóða langverst í skólamálum og Íslendingar eru frekar aftarlega á merinni nema í stærðfræði. Finnsk grunnskólabörn hafa áberandi mestu þekkinguna. Finnarnir eru í fyrsta sæti í lestri og náttúrufræði og öðru sæti í stærðfræði. Íslendingar koma heldur betur út í stærðfræði en Danir og Svíar fylgja þeim þétt eftir. Í lestri eru allar þjóðirnar með betri þekkingu en við en í náttúrufræði hafa Norðmenn verri þekkingu en við. Samkvæmt skoðanakönnun VG telja 47 prósent norsku þjóðarinnar að norski menntamálaráðherrann Kristin Clemet hafi staðið sig við að auka þekkingu norskra skólabarna meðan aðeins 5,8 prósent telja hana hafa staðið sig vel. Clemet hefur verið ráðherra í þrjú ár og leiðir umbætur í skólamálum sem eru í miðjum klíðum. Þessar umbætur þykja skila litlum árangri. Ýmsar skýringar hafa komið fram á lélegri þekkingu norskra skólabarna. Grunnskólakennarar í Noregi þykja illa launaðir, menntunin stutt og léleg og lítill friður er í skólakennslunni. Stjórnarandstaðan í Noregi krefst þess að ríkisstjórnin axli ábyrgðina á þessari lélegu útkomu en talsmenn ríkisstjórnarinnar telja niðurstöður könnunarinnar ekki á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar. Vandann megi rekja lengra aftur.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira