Ráðstöfunartekjur aukast verulega 30. nóvember 2004 00:01
Ráðstöfunartekjur fjölskyldnanna í landinu munu aukast verulega að mati forsætis- og fjármálaráðuneyta þegar skattalækkun ríkisstjórnarinnar tekur gildi fram til 2007. Heildaráhrifin leiða til 4,5 prósenta hækkunar ráðstöfunartekna allra heimila í landinu. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. Áhrif aðgerðanna eru mismunandi eftir fjölskyldugerðum og tekjum. Ráðstöfunartekjur hjóna með eitt til tvö börn hækka um 6-8 prósent í kjölfar lækkunar tekjuskatts og hækkunar barnabóta. Ráðstöfunartekjur einstæðra foreldra hækka heldur meira eða um 6-10 prósent. Sem dæmi má nefna að ráðstöfunartekjur einstæðs foreldris með eitt barn undir sjö ára aldri og 125 þúsund krónur í tekjur á mánuði hækka um 12.500 krónur á mánuði. Þetta er 10 prósenta hækkun. Ráðstöfunartekjur hjóna með alls 300 þúsund krónur í tekjur á mánuði og tvö börn, annað yngra en sjö ára, hækka um 23.500 krónur eða 9,5 prósent. Rétt er þó að hafa í huga að kaupmáttaraukningu er hægt að skoða með þrennum hætti, kaupmætti kjarasamninga, kaupmætti launabreytinga og kaupmætti ráðstöfunartekna. Kaupmáttur ráðstöfunartekna sýnir langmestu hækkunina. Forsvarsmenn launþegasamtakanna í landinu hafa lýst áhyggjum sínum af því að verið sé að kaupa auknar ráðstöfunartekjur á kostnað kaupmáttar kjarasamninga og velferðarkerfisins. Verðbólga aukist umfram áætlanir og kjarasamningar komist í uppnám á næsta ári. Búist er við að útreikningar hagfræðinga launþegasamtaka á kaupmáttaraukningu skattalækkananna liggi fyrir á næstu dögum. Gert er ráð fyrir að ný verðbólguspá Seðlabankans verði birt á morgun og er jafnvel búist við að tilkynnt verði um hækkun stýrivaxta við það tækifæri.
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira