Innlent

Sjálfstæði fréttastofanna

Útvarpsráð afréð á fundi í gær að ráðið yrði í stöðu fréttastjóra útvarps. Bogi Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs, hafði mælst til að ekki yrði ráðið í stöðuna heldur yrði hann yfirfréttastjóri beggja, Elín Hirst varafréttastjóri og vaktstjórar stjórnuðu hvorri fréttastofunni fyrir sig; sjónvarps og útvarps. Nokkrar umræður spunnust um málið en útvarpsráð var einhuga um að hafna hugmyndinni og halda í sjálfstæði fréttastofanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×