Fjarlægðin ver okkur fuglaflensu 15. desember 2004 00:01
Hverfandi hætta er talin á því að farfuglar geti borið hingað fuglaflensu, að mati Auðar Lilju Arnþórsdóttur, sóttvarnadýralæknis hjá yfirdýralæknisembættinu. "Út af fyrir sig er hins vegar áhugavert að skoða straum farfugla frá þessum löndum þar sem hættan er mest," segir Auður Lilja og bætir við að vitað sé um andfugla sem fari yfir Síberíu, niður Finnland og yfir Danmörku til Þýskalands. Hún segir mjög litlar líkur á að smit gæti borist hingað vegna skörunar við aðra farfugla. "Við erum í einna minnstri hættu hér á landi, nema auðvitað að fram komi stökkbreytt afbrigði sem smitast á milli manna." Í Asíu hefur fuglaflensa greinst í villtum fuglum, síðast fyrir hálfum mánuði í dauðum gráhegra sem fannst í Hong Kong nærri landamærunum við Kína. Hegrinn var sýktur af H5N1 fuglaflensuvírusnum, en hann hefur á árinu orðið yfir 30 manns að bana í Víetnam og Taílandi. Í síðasta mánuði fannst annar dauður gráhegri með H5N1 vírusinn á sama svæði og í janúar fannst dauður förufálki sem einnig greindist með fuglaflensu. Fólk getur smitast af fuglaflensuvírusnum af sýktum fuglum, en hann smitast ekki á milli manna. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur uppi viðbúnað af ótta við að fram komi stökkbreytt afbrigði vírussins sem valdið gæti mannskæðum heimsfaraldri. Búist er við að allt að sjö milljón manns gætu látist um heim allan í slíkum faraldri. "Aðalfarfuglarnir sem hætta er af er fólkið, það er að segja ef stökkbreyting verður í vírusnum," segir Auður Lilja. Auður Lilja segir þó ekki hægt að neita því að nokkur fjöldi sjúkdóma sem borist geti með dýrum færist nær landinu. "Við erum auðvitað mjög á verði gagnvart slíkum sjúkdómum. Það eru ýmsir af þessum veirusjúkdómum og líka fleira sem kemur til af breyttum aðstæðum, svo sem hlýnandi veðurfari. Margir af þessum sjúkdómum þurfa millihýsla sem við erum laus við hér," segir hún, en bætir við að vitanlega þurfi að vera á varðbergi gagnvart nýjum tegundum sem hér geti stungið sér niður. "Við vitum um þessa snigla sem hér eru að koma," segir hún og bætir við að hér hafi einnig fundist stöku blóðmaurar sem algengir eru á Norðurlöndunum, en hafi hingað til ekki fundist hér. "Þetta er nokkuð sem við erum vakandi fyrir, en þeir geta borið með sér veirur."
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Fleiri fréttir „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Sjá meira