Innlent

Geri sér grein fyrir áhættu

Fjármálaeftirlitið hyggst herða eftirlit með fasteignalánum og útlánum sem fela í sér markaðsáhættu. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að bankarnir verði að gera sér grein fyrir þeim áhættum sem fylgi þeirri þróun sem átt hafi sér stað. Því verði gerðar auknar kröfur um aukin skýrsluskil til Fjármálaeftirlitsins meðal annars vegna þeirrar áhættu sem kunni að fylgja veði í fasteignum og hlutabréfum. Hann segir jafnfamt að bankarnir verði að búa sig undir það að gerðar verði auknar eiginfjárkröfur vegna fyrrgreindrar áhættu. Fjármálaeftirlitið hafi aðferðir til þess að gera auknar eiginfjárkröfur til viðskiptabankanna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×