Upplausnarástand í Ísrael 19. ágúst 2004 00:01
Upplausnarástand er í ísraelskum stjórnmálum eftir að flokksfélagar í Likud-flokki Ariels Sharons höfnuðu hugmyndum hans um samsteypustjórn með Verkamannaflokknum. Sharon hyggst þrátt fyrir þetta reyna að mynda stjórn en leiðtogar Verkamannaflokksins telja kosningar óumflýjanlegar. Sharon beið lægri hlut í atkvæðagreiðslu Likud-flokksins í gær þegar flokksmenn höfnuðu því að leyfa Sharon að mynda samsteypustjórn með Verkamannaflokknum. Þetta er áfall fyrir Sharon og gæti hindrað framgang áætlana um brotthvarf frá Gasa-ströndinni en samsteypustjórninni var einkum ætlað að tryggja framgang þess. Harðlínumenn í Likud-flokknum hafa frá upphafi lagst eindregið gegn þeim hugmyndum og tókst þeim að fá fimmtíu og átta prósent þeirra sem greiddu atkvæði í lið með sér. Þetta þykir niðurlæging fyrir Sharon en nánustu samstarfsmenn hans höfðu reynt allt hvað þeir gátu til að safna stuðningsmönnum til að tryggja hagstæða niðurstöðu. Harðlínumennirnir, með Silvan Shalom utanríkisráðherra og Benjamín Netanyauh fjármálaráðherra í broddi fylkingar, líta svo á að þeim hafi með sigrinum í gær tekist að bjarga Likud-flokknum frá því að klofna. Sharon kveðst ekki ætla að gefast upp og hefur gefið í skyn að hann kunni að ganga gegn vilja flokksmanna og mynda samsteypustjórn, þrátt fyrir úrslit atkvæðagreiðslunnar. Alls er þó óvíst að það geti gengið því leiðtogar Verkamannaflokksins hafa nú efasemdir um skynsemi samsteypustjórnar með Sharon sem veikan forsætisráðherra, án stuðnings eigin flokks. Þeir vilja frekar að gengið verði til nýrra kosninga. Á myndinni eru frá vinstri: Ehud Olmert aðstoðarforsætisráðherra Ísraels, Ariel Sharon forsætisráðherra og Silvan Shalom utanríkisráðherra.
Erlent Fréttir Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Sjá meira