Stálu Ópinu og Madonnu 22. ágúst 2004 00:01
Hinu fræga málverki Edvards Munch, Ópinu, var stolið frá Munch-safninu í Ósló í gær ásamt fleiri málverkum. Meðal þeirra var annað frægt verk eftir Munch, og heitir það Madonna. Tveir eða þrír vopnaðir menn gengu inn í safnið, hótuðu starfsfólki með byssum og fóru með málverkin út í bifreið sem beið fyrir utan safnið. Margir safngestir fylltust skelfingu og óttuðust jafnvel að þarna væru hryðjuverkamenn á ferðinni. Flóttabíllinn fannst fljótlega. Í honum voru sundurteknir rammar utan af málverkunum. Franskur útvarpsmaður, Francois Castang, sagðist hafa verið að skoða safnið þegar þjófarnir ruddust inn og komust á brott með málverkin. "Það sem er einkennilegt er að í þessu safni var enginn útbúnaður til að verja málverkin, engin viðvörunarbjalla," sagði Castang. "Málverkin voru einfaldlega hengd upp á veggina," sagði hann. "Það þurfti ekki annað en að toga í málverkin nógu fast til þess að bandið slitnaði - ég sá einn þjófanna gera það." Lögreglan kom á vettvang fimmtán mínútum síðar. Safngestum var smalað inn á kaffistofu safnsins. Til eru fjórar útgáfur af Ópinu. Tvær þeirra voru í Munch-safninu í Ósló, einkasafnari á þriðja eintakið og það fjórða er til sýnis í þjóðlistasafninu í Ósló. Síðastnefnda eintakinu var stolið árið 1994, en það fannst þremur mánuðum síðar. "Munch málaði þau öll, og þau eru öll jafn verðmæt," sagði Jorunn Christoffersen, talskona Munch-safnsins. "En það er samt ekki nokkur leið að selja þessi málverk, né heldur að verðleggja þau." Þrír Norðmenn voru handteknir eftir að stolna málverkið fannst árið 1994. Þjófarnir reyndu þá að fá peninga frá norska ríkinu í skiptum fyrir stolna málverkið, en að þeim kröfum var aldrei gengið.
Erlent Fréttir Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Sumir framhaldsskólar líti fram hjá unglingadrykkju Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent Fleiri fréttir Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Sjá meira