Fyrstu réttarhöldin í Guantanamo 22. ágúst 2004 00:01
Fjórir af föngum Bandaríkjahers í Guantanamo á Kúbu koma fyrir herdómstól í vikunni. Þetta verða fyrstu réttarhöldin yfir föngum í Guantanamo. Nærri 600 fangar eru í haldi Bandaríkjahers á Kúbu. Þeir hafa flestir setið í fangabúðum þar í meira en tvö ár. Lögfræðingar, mannréttindasamtök og stjórnvöld margra ríkja hafa harðlega gagnrýnt Bandaríkjastjórn fyrir málsmeðferðina, sem á sér engin fordæmi. Einn fjórmenninganna, sem koma fyrir dóm í vikunni, var bílstjóri Osama bin Laden. Annar er sakaður um að hafa verið með áróður fyrir hryðjuverkum. Sá þriðji er talinn hafa verið bókhaldari al-Kaída og sá fjórði barðist með talibanasveitum í Afganistan. Verjandi eins þeirra hefur ekki séð skjólstæðing sinn í fjóra mánuði vegna stjórnsýslutafa við að veita túlki heimild til að vera með verjandanum. Verjandi annars þeirra hefur óskað eftir því að hætta að verja skjólstæðing sinn, sem þýðir að hann situr eftir án verjanda. Aðrir verjendur segja að strangar reglur, sem meðal annars veita hernum heimild til þess að fylgjast með viðræðum sakborninga við verjendur sína, geri þeim nánast ókleift að fá sýknudóm. Stór hluti fanganna á Kúbu kom þangað í janúar árið 2002. Bandaríkjastjórn var snögg að lýsa yfir sekt þeirra fyrirfram: "Þetta eru drápsmenn," sagði George W. Bush Bandaríkjaforseti. John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði þá "einstaklega hættulega". Allir eiga sakborningarnir fjórir yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Margir aðrir fangar sem sitja í fangabúðunum eiga þó yfir höfði sér líflátsdóm.
Erlent Fréttir Mest lesið Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Erlent Sást ekki til sólar fyrir mýi Innlent Tekist á um breytta ásýnd Suðurlandsbrautar með tilkomu Borgarlínunnar Innlent Bensínbrúsar inni í íbúðinni Innlent Fólk látið vinna of hratt og fái ekki greitt fyrir alla vinnuna Innlent Fólk í fjarvinnu finni fyrir minni streitu Innlent Brennandi einbýlishús reyndist eyðibýli Innlent Hitabylgjan sú mesta í maímánuði svo vitað sé Veður Fólk veltir fyrir sér hvort Áslaug Arna hafi verið slompuð í ræðustól Innlent Ökumenn sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Árásarkonan Þjóðverji á fertugsaldri Tólf særðir eftir hnífstunguárás í Hamborg Vilja breyta mannréttindasáttmála til að auðvelda sér að sparka innflytjendum úr landi Hvetja Íslendinga í Harvard til að hafa samband Ákærður fyrir að myrða sendiráðsstarfsfólk Ísraels Netanjahú segir Starmer, Macron og Carney draga taum Hamas Rússar notuðu Brasilíu sem njósnaraverksmiðju Íslendingur í Bandaríkjunum: „Þetta er mjög óþægileg staða“ Banna erlendum nemendum að sækja Harvard Eyðilegging í íbúðahverfi í San Diego eftir að lítil flugvél hrapaði Samþykktu billjóna dollara skattalækkanir og niðurskurð til velferðarmála Norðmaður fékk flutningaskip næstum inn í húsið á meðan hann svaf Tveir ísraelskir sendiráðsstarfmenn skotnir til bana í Washington Íbúar Austur-Grænlands mótmæltu einangrun og pólitísku afskiptaleysi Skutu mann í röngu húsi en brutu ekki af sér Nota lygapróf til að leita lekamanna og refsa þeim Notuðu þúsundir myndavéla til að vakta hergagnaflutninga Sat fyrir forseta Suður-Afríku með ásökunum um þjóðarmorð á hvítum Handtóku unga öfgahægrimenn sem hugðu á hryðjuverk Úkraínskur fyrrverandi embættismaður skotinn til bana í Madrid Norðmenn þurfa að taka tillit til loftslagsáhrifa olíuvinnslunar Dreifing hjálpargagna enn ekki hafin Senda farandfólk frá Asíu til Suður-Súdan Synir El Chapo sagðir hafa myndað afdrífaríkt bandalag Ætlar að eyða mun minna í pólitíkina Hætta viðræðum við Ísrael og boða aðgerðir Evrópuríki leggja refsiaðgerðir á „skuggaflota“ Rússa Fjarlægja höfundarmerkingu einnar frægustu fréttaljósmyndar sögunnar Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Kanada hóta aðgerðum gegn Ísrael Sagði „Diddy“ hafa hótað að láta hana hverfa Sjá meira