Málverkin einhvers staðar í Ósló 23. ágúst 2004 00:01
Norska lögreglan telur að málverkunum sem stolið var úr Munch-safninu í Ósló í gær hafi verið komið fyrir einhvers staðar í borginni. Tveir vopnaðir menn höfðu útgáfur af frægustu verkum Munchs á brott með sér í gærmorgun, Ópinu og Madonnu. Tugir gesta voru í safninu á þessum tíma og hafa þeir gefið þann vitnisburð að mennirnir hafi borið sig klaufalega. Lögreglan leitar nú að vísbendingum um hvað ræningjarnir ætli sér með verkin; hvort þeir séu bara að skemmta sér, hafi þegar fundið kaupanda eða ætli að krefjast lausnargjalds en verkin eru metin á marga milljarða íslenskra króna. Stjórn safnsins hefur verið harðlega gagnrýnd í norskum fjölmiðlum sem segja minna mál að ræna þjóðargersemunum en sígarettupakka úr sjoppu. Það þykir enda stórfrétt á heimsvísu að hægt hafi verið að stela einu af þekktustu listaverkum heims á listasafni, fullu af gestum um hábjartan dag, án þess að heyrst svo mikið sem í einni lítilli viðvörunarbjöllu. Ekki er nema áratugur frá því að Ópinu var síðast stolið, þó það hafi verið önnur útgáfa verksins, en það var sama dag og Vetrarólympíuleikarnir í Lillehammer voru settir. Þá segir sagan að þjófarnir hafi skilið eftir sig miða sem á stóð: „Takk fyrir lélega öryggisgæslu.“ Myndin sýnir ramma málverkanna þar sem þeir fundust í Ósló í gær.
Erlent Fréttir Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Fleiri fréttir Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Sjá meira