Útlit ekki aðalmálið hjá leiðtogum 24. október 2004 00:01
Það er útbreiddur misskilningur að útlit og útgeislun stjórnmálaleiðtoga skipti öllu máli þegar kemur að kjörfylgi. Rannsóknir sýna að það eru málefnin og stjórnmálaflokkurinn sem ræður því hvað fólk kýs. Það hefur lengi verið viðtekin viska að fjölmiðlar, einkum sjónvarp, hafi umbylt allri stjórnmálaumræðu og þá sérstaklega hlutverki stjórnmálaleiðtogans. Svo er nú aldeilis ekki segir Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor í stjórnmálafræði, sem var einn þeirra fjölmörgu sem kynntu niðurstöður rannsókna sinna á nýafstöðnu þingi um rannsóknir í félags- og hugvísindum í Háskóla Íslands. Ólafur segir að sumir haldi að kosningar snúist bara um hvernig frambjóðandinn líti út; það skipti engu máli hvað hann hafi að segja, hvaða flokki hann er í og þar fram eftir götunum. Nánast allar rannsóknarniðurstöður benda til þess að þetta sé mjög skekkt mynd. Flokkar, málefni og þess háttar hlutir skipta áfram mjög miklu máli. Ólafi sýnist að óbeint hlutverk leiðtogans sé að halda flokki sínum saman og sjá til þess að hann standi sig í verkum sínum þegar hann er í ríkisstjórn. Það skipti miklu meira meira máli en það hvort útlit leiðtogans sé heillandi, röddin góð o.s.frv. Ólafur segir að í Bandaríkjunum skipti persónuþættir stjórnmálamanna samt yfirleitt meira máli en í evrópsku kerfunum þar sem stjórnmálaflokkar og málefni vegi meira á metunum. Hann efast samt um að John Kerry tapi kosningunum í haust vegna þess að hann sé tréhestur, eins og sumir hafi talað um.
Erlent Fréttir Mest lesið Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Innlent Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Innlent Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Erlent Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Innlent „Ég er skrímsli“ Innlent Vara við snörpum vindhviðum Veður Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Erlent Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Innlent Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Fleiri fréttir Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Ebólan komin í metstærð á mettíma Nýr forseti hét því að beita hernum gegn glæpum Þrettán látnir hið minnsta í Japan Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Sjá meira