Ali enn í haldi liðsmanna Sadr 21. ágúst 2004 00:01
Liðsmenn uppreisnarklerksins Múktada al-Sadr hafa Ali-moskuna, í borginni Najaf í Írak, enn á sínu valdi. Viðræður um að afhenda hana æðsta trúarleiðtoga sjíta, al-Sistani, hafa staðið yfir í dag en til átaka kom í nágrenni við moskuna. Viðræðurnar í dag hafa meðal annars snúist um það hvernig standa eigi að því að afhenda peninga, gull og önnur verðmæti úr moskunni, sem talin er einn helsti helgistaður sjíta, enda er frændi og mágur sjálfs spámannsins Múhameðs sagður hvíla þar. Fylgismenn al-Sadrs hafa hafst fyrir í moskunni svo dögum skiptir, og haft að engu fyrirskipanir íröksku stjórnarinnar um að leggja niður vopn. Enn kom til átaka í dag í nágrenni hennar, þrátt fyrir samningaumleitanir al-Sadrs og fulltrúa æðsta trúarleiðtoga sjíta, al-Sistani, um að hann fái þar lyklavöld. Talsmaður Bandaríkjahers segir að að þeim hafi verið ráðist, og þeirri árás hafi verið svarað með árásum úr lofti og af jörðu niðri. Þrátt fyrir að samkomulag um að al-Sadr muni afsala sér yfirráðum yfir moskunni til æðsta klerksins, eru menn hans staðráðnir í að gæta hennar áfram og þar stendur hnífurinn í kúnni. Talsmaður al-Sadrs segir að þegar hafi verið reynt að afhenda fulltrúum al-Sistani lyklana, en þeir hefðu neitað og krafist þess að vopnaðir fylgismenn al-Sadrs létu sig hverfa. Stjórnvöld hafa hikað við að ráðast til inngöngu í moskuna, með liðsinni Bandaríkjahers, af ótta við að espa upp almenning í landinu og grafa undan trausti manna á bráðabirgðastjórn landsins, sem er afar umdeild.
Erlent Fréttir Mest lesið Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Erlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Skiluðu hagnaði á kosningaári Innlent Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Gleðileg jól, kæru lesendur Innlent Fleiri fréttir Þau kvöddu á árinu 2025 Kynnti drög að nýrri friðaráætlun Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Sjá meira