Innlent

Mikil elding myrkvaði Grindavík

Mikilli eldingu laust niður rétt vestan við Grindavík upp úr klukkan hálftíu í morgun og myrkvaðist bærinn í kjölfarið. Grindvíkingar eru öðrum landsmönnum líklega vanastir að sjá eldingar en þeir líkja þessu ljósafyrirbæri fremur sem eldhnetti en venjulegri eldingu og virðist sem mikið neistaflug kæmi í kjölfarið. Þeir sem voru innandyra og sáu ekki glæringarnar töldu að jarðskjálfti hefði orðið og drunurnar heyrðust greinilega í Keflavík. Starfsmenn Hitaveitu Suðurnesja, sem sér um raforkumál í Grindavík, komu þegar á vettvang og kom í ljós að rofar í spennistöð í bænum höfðu brunnið yfir vegna álags en hægt var að tengja framhjá spennistöðinni þannig að rafmagn var að mestu komið á aftur rétt fyrir klukkan ellefu. Talið er að eldingunni hafi slegið niður í háspennulínu sem liggur upp á fjallið Þorbjörn fyrir ofan Svartsengi en línan liggur að endurvörpum síma og sjónvarpsfyrirtækja á fjallinu. Þar uppi er sjálfvirk rafstöð til að knýja sendana en hásspennulínan er enn úti. Ekki er ljóst hvort einhverjar skemmdir hafa orðið á línunni eða sendibúnaði á fjallinu en það verður væntanlega kannað eftir hádegi. Eldinga varð vart á nokkrum stöðum á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum í morgun en ekki er vitað til þess að neitt tjón hafi hlotist af þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×